Það komu tveir Íslendingar við sögu í leikjum dagsins í Danmörku og Færeyjum þar sem Guðlaugur Victor Pálsson lék allan leikinn í hægri bakverði í sigri Horsens. Breki Baldursson var ekki í hóp hjá Esbjerg.
Horsens lagði Esbjerg á útivelli í næstefstu deild í Danmörku og urðu lokatölur 0-1 þrátt fyrir yfirburði heimamanna. Eina mark leiksins var sjálfsmark.
Þetta er rosalega dýrmætur sigur í toppbaráttunni þar sem Horsens, Esbjerg, Hilleröd og Hvidovre eru í harðri fjögurra liða baráttu um síðasta lausa sætið í Superliga.
Á sama tíma var Alex Freyr Elísson í byrjunarliðinu hjá NSÍ Runavík í færeyska bikarnum.
Alex Freyr lagði upp í fjögurra marka sigri á útivelli gegn Vestur Sorvagur og er NSÍ þar með búið að tryggja sér sæti í undanúrslitunum. Þar getur liðið mætt KÍ Klaksvík, Víking Göta eða HB frá Þórshöfn.
Sigurður Ragnar Eyjólfsson þjálfar NSÍ, sem er búið að byrja tímabilið mjög vel í Færeyjum og trónir á toppi efstu deildar með 17 stig eftir 7 umferðir.
Esbjerg 0 - 1 Horsens
Vestur Sorvagur 0 - 4 NSÍ Runavík



