Bruno áfram á Old Trafford - Leao orðaður við Man Utd - Milan til í að skoða skipti
banner
   fim 30. apríl 2026 22:53
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu ótrúlega markvörslu Emi Martínez
Martínez er af mörgum talinn vera einn af bestu markvörðum heims. Hann hefur unnið til ótal einstaklingsverðlauna á síðustu árum.
Martínez er af mörgum talinn vera einn af bestu markvörðum heims. Hann hefur unnið til ótal einstaklingsverðlauna á síðustu árum.
Mynd: EPA
Emiliano Martínez var á sínum stað á milli stanga Aston Villa í undanúrslitaleik Evrópudeildarinnar sem fór fram fyrr í kvöld.

Martínez átti nokkrar góðar vörslur í 1-0 tapi gegn Nottingham Forest og var ein þeirra í heimsklassa.

Igor Jesus fékk boltann í dauðafæri þar sem virtist vera nóg að koma honum á markrammann til að skora, en Martínez var ótrúlega fljótur að bregðast við og náði að teygja handlegginn í boltann.

Morgan Gibbs-White átti sendinguna á Jesus og horfði á atvikið úr návígi.

„Hvernig varði hann þetta skot eiginlega? Ég skil það ekki, hvernig gerði hann þetta? Ég man þegar hann átti svipaða vörslu í fyrra. Ég öskraði á Igor: 'hvernig tókst þér að skora ekki úr þessu?' en eftir að hafa séð þetta aftur þá á markvörðurinn allt hrós skilið. Þetta er mögnuð markvarsla," sagði Gibbs-White meðal annars í viðtali að leikslokum, en hann nýtti líka tækifærið til að hrósa Vítor Pereira þjálfara og framherjanum reynslumikla Chris Wood sem skoraði eina mark leiksins úr vítaspyrnu.


Emiliano Martinez save vs Nottingham Forest 33'
by
u/977x in
soccer

Slapp
banner
banner
banner