Allegri orðaður við Man Utd - Modric að framlengja við Real Madrid
banner
   mán 03. febrúar 2020 12:53
Elvar Geir Magnússon
King pirraður út í Man Utd
Josh King.
Josh King.
Mynd: Getty Images
Sóknarmaðurinn Josh King er pirraður yfir því hvernig Manchester United höndlaði málin á gluggadeginum þegar hann virtist vera á leið á Old Trafford.

Ole Gunnar Solskjær reyndi að fá þennan leikmann Bournemouth en endaði á því að sækja Odion Ighalo á lánssamningi.

The Athletic segir að King sé bálreiður yfir því hvernig Manchester United höndlaði hlutina og finnst framkoman við sig fyrir neðan allar hellur.

Manchester United náði ekki samkomulagi við Bournemouth en United sagðist ætla að koma með þriðja tilboð sem aldrei kom.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner