Hvert fer Sancho? - Díaz orðaður frá Liverpool - City og Barca hafa áhuga á ungstirni Arenal - Elliott til Ítalíu og Sesko til Liverpool?
   þri 03. júní 2025 17:49
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sex fá lengra frí í Bestu - Tveir ekki með á morgun
Alex fékk rautt gegn KA.
Alex fékk rautt gegn KA.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Tomic ekki með Eyjamönnum í næsta leik.
Tomic ekki með Eyjamönnum í næsta leik.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sex leikmenn í Bestu deildinni munu taka út leikbann í 11. umferð Bestu deildarinnar sem fer fram eftir landsleikjahlé. Hlé er á deildinni til 14. júní.

Eini leikmaðurinn sem fékk rautt spjald í liðinni umferð var Alex Þór Hauksson, miðjumaður Stjörnunnar, en spjald hans var ansi umdeilt. Hann verður ekki með gegn Val þarnæsta laugardag.

Tveir leikmenn Vestra fengu sitt fjórða gula spjald í liðinni viku og verða því í banni gegn KA.

Víkingur verður án Tarik Ibrahimagic gegn KR og KR verður án Aron Þórðar Albertssonar. ÍBV verður þá án Milan Tomic gegn Breiðabliki.

Tveir leikmenn í Lengjudeildinni verða þá í banni á morgun. Þeir Dagur Ingi Axelsson hjá HK og Árni Elvar Árnason hjá Fjölni hafa báðir fengið fjögur gul spjöld í fyrstu fimm leikjunum. Fjölnir heimsækir Njarðvík á morgun og HK tekur á móti Selfossi.

11. umferð Bestu
laugardagur 14. júní
19:15 Stjarnan-Valur (Samsungvöllurinn)

sunnudagur 15. júní
14:00 Vestri-KA (Kerecisvöllurinn)
16:00 ÍBV-Breiðablik (Hásteinsvöllur)
19:15 Fram-FH (Lambhagavöllurinn)
19:15 Afturelding-ÍA (Malbikstöðin að Varmá)

mánudagur 16. júní
19:15 Víkingur R.-KR (Víkingsvöllur)
Athugasemdir
banner
banner