Hvert fer Sancho? - Díaz orðaður frá Liverpool - City og Barca hafa áhuga á ungstirni Arenal - Elliott til Ítalíu og Sesko til Liverpool?
   þri 03. júní 2025 19:40
Ívan Guðjón Baldursson
Porro vonast til að Ange verði áfram
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Spænski bakvörðurinn Pedro Porro vonast til að Ange Postecoglou verði áfram við stjórnvölinn hjá Tottenham eftir sumarið.

Tottenham átti afleitt tímabil í ensku úrvalsdeildinni en tókst að sigra Evrópudeildina, sem gefur liðinu sæti í Meistaradeildinni næsta haust.

Þetta var fyrsti titill Tottenham í 17 ár, titill sem Postecoglou hafði lofað stuðningsmönnum á fréttamannafundi fyrir löngu síðan. Titillinn kom þó á versta tímabili í sögu Tottenham frá stofnun ensku úrvalsdeildarinnar 1992, en Tottenham er eitt af sex félögum sem hafa aldrei fallið úr deildinni.

„Það væri mjög gott fyrir búningsklefann ef Ange heldur áfram, hann er búinn að byggja frábæran hóp hérna. Hann þarf að fá meiri tíma. Okkur gekk ekki vel í deildinni en við unnum samt titil sem er gríðarlega mikilvægt," segir Porro.

„Mikilvægu mennirnir í klefanum verða að átta sig a þessu."

Porro er einn af fjölmörgum leikmönnum Tottenham sem hafa komið honum til varnar í viðtölum við fjölmiðla að undanförnu.
Athugasemdir