Bruno sagður falur fyrir 60 milljónir punda - Sancho aftur til Dortmund - Zidane tekur við Frökkum - De Zerbi til Spurs
„Menn þurfa að vera á tánum til að spila í Víkingstreyjunni“
„Enginn sem óskar sér þess að mæta Víkingi“
Gæðastjórinn ætlar að reikna út xF
Birkir Már: Hefði sagt takk en nei takk væri hann ekki þarna
Víkingar unnu FH og Stjörnuna í dag - „Gera mér virkilega erfitt fyrir að velja í liðið“
Jökull: Yrði mjög sérstakt ef við myndum breyta einhverju þar
Heimir: Vel mannaðir, með frábæran þjálfara og ætla sér stóra hluti
Óskar Hrafn: Hef fullan skilning á því að okkur sé spáð 6. sæti
„Flottasta treyja sem við höfum spilað í"
„Fór frá því að spila yfir í það að mega ekki vera með á æfingum“
Sölvi: Teljum okkur vera með þannig hóp í ár
Stærsti samningur í sögu Víkings
Gylfi vonast til að vera mættur til að vera í landsliðinu - „Vonandi sem lengst“
Jökull: Sumt var full harkalegt
Adolf Daði: Ber miklar tilfinningar til Stjörnunnar
Jói Kalli: Skiptir máli þegar deildin byrjar
Arnar: Þurfum að taka doktorsprófið í að verða alvöru lið
Siggi Höskulds: Megum ekki vera svona barnalegir í sumar
Gummi Tyrfings: Við slökktum í þeim frá fyrstu mínútu
Allur pakkinn dró Djuric norður - „KA er stórveldið á Akureyri"
banner
   þri 03. júní 2025 21:05
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Laugardalsvelli
Glódís: Bara þið blaðamenn að tala um þetta
Icelandair
EM KVK 2025
Glódís í leiknum í kvöld.
Glódís í leiknum í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
„Þetta var týpískur leikur á Íslandi í miklum vind," sagði Glódís Perla Viggósdóttir, landsliðsfyrirliði, eftir 0-2 tap gegn Frakklandi í Þjóðadeildinni í kvöld.

„Þetta var ekki okkar besta frammistaða en að sama skapi þegar maður hugsar um þetta, þá eru þær ekki að skapa sér nein færi sem er jákvætt. Mörkin sem þær skora eru af því að við erum að slökkva á okkur. Það er eitthvað sem við verðum að taka með en þetta má ekki gerast og sérstaklega ekki á EM."

Lestu um leikinn: Ísland 0 -  2 Frakkland

Íslenska liðið fékk góðar stöður í fyrri hálfleik og hefði átt að nýta vindinn betur.

„Já klárlega. Ég fæ frákast og Sveindís fær fínt færi stuttu seinna. Við hefðum getað nýtt okkur það oftar að sækja föstu leikatriðin því við vissum að þeim liði ekki vel með það og við erum góðar í því."

Ísland hefur núna ekki unnið í tíu leikjum í röð og það er aðeins einn leikur eftir áður en Evrópumótið hefst. Er mikilvægt að vinna Serbíu í síðasta leiknum áður en EM hefst?

„Ég held að við munum líka nýta þennan leik í að vinna í ákveðnum hlutum fyrir EM. Sá leikur er kannski ekki týpískur leikur. Auðvitað langar okkur að ná í sigur, en það eru bara þið blaðamenn sem eruð að tala um við erum ekki að vinna leiki. Þetta er ekki eitthvað sem truflar okkur þannig, við erum ekki að láta þetta komast til okkar. Við getum stjórnað frammistöðunni og í mörgum leikjum í Þjóðadeildinni hefur hún verið flott. Við tökum það með okkur. Þótt við hefðum unnið í dag þá hefðum við samt lent í þriðja sæti. Við þurfum bara að horfa fram á við og láta sigrana koma á EM," sagði Glódís.
Athugasemdir
banner