Hvert fer Sancho? - Díaz orðaður frá Liverpool - City og Barca hafa áhuga á ungstirni Arenal - Elliott til Ítalíu og Sesko til Liverpool?
   þri 03. júní 2025 19:00
Ívan Guðjón Baldursson
Mbeumo vill 250 þúsund pund í vikulaun
Mbeumo í baráttunni við Virgil van Dijk.
Mbeumo í baráttunni við Virgil van Dijk.
Mynd: EPA
Manchester United virðist vera að ganga frá kaupum á sóknarleikmanninum Bryan Mbeumo en The Times greinir frá því að hann heimti 250 þúsund pund í vikulaun.

Mbeumo, 25 ára, er aðeins með eitt ár eftir af samningi sínum við Brentford og ætlar ekki að semja aftur við félagið nema að hann fái umtalsverða launahækkun.

Mbeumo skoraði 20 mörk og gaf 8 stoðsendingar í 38 úrvalsdeildarleikjum með Brentford á nýliðnu tímabili.

Talið er að Brentford vilji rúmlega 60 milljónir punda til að selja Mbeumo þó að hann eigi aðeins eitt ár eftir af samningi, en leikmaðurinn hefur einnig verið orðaður við Liverpool, Arsenal og Newcastle.

Mbeumo fær 50 þúsund pund í vikulaun hjá Brentford og er sagður ekki vilja skrifa undir nýjan samning fyrir undir 250 þúsund pund í vikulaun.
Athugasemdir
banner