Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   þri 03. júlí 2018 14:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Guðbjörg Gunnars spáir í 8. umferð Pepsi-kvenna
Guðbjörg Gunnarsdóttir.
Guðbjörg Gunnarsdóttir.
Mynd: Fotbolti.net - Anna Þonn
Landsliðsmiðvörðurinn Glódís Perla Viggósdóttir var með þrjá rétta þegar hún spáði í sjöundu umferð Pepsi-deildar kvenna. Félagi hennar í landsliðinu, markvörðurinn Guðbjörg Gunnarsdóttir, ætlar að gera betur en hún.

Hér er spá Guðbjargar fyrir áttundu umferðina sem hefst í kvöld.



HK/Víkingur 0 - 2 ÍBV (klukkan 18:00 í kvöld)
ÍBV tekur þetta 2-0. Þær eru í sárum eftir svekkjandi 1-1 jafntefli í síðustu umferð gegn Grindavík og koma vel peppaðar í þennan leik.

Valur 2 - 1 Þór/KA (klukkan 18:00 í kvöld)
Bæði liðin koma með mikið sjálfstraust inn í stórleik umferðarinnar. Leikurinn verður hnífjafn en Valskonur taka þetta 2-1 með mörkum frá Elínu Mettu og Hlín.

Stjarnan 2 - 2 FH (klukkan 19:15 á morgun)
Ég spái að uppeldisfélagið mitt nái í eitt stig á þessum sterka útivelli í Garðabænum.

Grindavík 1 - 1 KR (klukkan 19:15 á morgun)
Það verður rok og rigning í Grindavík og erfitt að spila fínan fótbolta. Mörkin verða skoruð í sitthvorum hálfleiknum.

Selfoss 0 - 4 Breiðablik (klukkan 19:15 á morgun)
Blikastelpur verða hungraðar eftir tapið á Akureyri, þær verða með yfirhöndina frá upphafi til enda.

Fyrri spámenn:
Glódís Perla Viggósdóttir (3 réttir)
Oliver Sigurjónsson (2 réttir)
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner