Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
   mið 03. júlí 2019 22:32
Helga Katrín Jónsdóttir
Fanndís: Kann ekki að láta mig detta
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Toppslagnum á Hlíðarenda lauk með 2-2 jafntefli og var Fanndís alls ekki sátt eftir leik.

Lestu um leikinn: Valur 2 -  2 Breiðablik

"Nei ég er ekki sátt, mér fannst við hafa verið með yfirhöndina í leiknum og svo náttúrulega glórulaus dómgæsla hérna í restina."

Þá á Fanndís við jöfnunarmark Blika en vildi hún meina að Alexandra hafi verið rangstæð.

"Hún stendur útaf og kemur inn á völlinn og er væntanlega kolrangstæð og ég skil ekki hvernig línuvörðurinn gat ekki séð það."

Það var ekki það eina sem Fanndís var ósátt með í leiknum en hún vildi líka fá vítaspyrnu.

"Þeir sem fylgjast með fótbolta vita það að ég kann ekki að láta mig detta. Bara 100% víti."

Að sögn Fanndísar hefðu þær átt að gera út um leikinn strax í fyrri hálfleik:

"Já við vorum bara klaufar að vera ekki búnar að klára þetta fyrr."

Fanndís vill ekki meina að þetta hafi verið úrslitaleikur í deildinni:
"Þetta var enginn úrslitaleikur, það er bara næsti leikur á mánudag."
Athugasemdir
banner
banner