Allegri orðaður við Man Utd - Modric að framlengja við Real Madrid
banner
   þri 04. febrúar 2020 22:57
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Milner ekki í vetrarfríi - Hjálpaði liðinu
Milner var í stúkunni í kvöld.
Milner var í stúkunni í kvöld.
Mynd: Getty Images
Eins og flestir aðrir leikmenn aðalliðs Liverpool þá var James Milner ekki í vetrarfríi í dag. Hann sat í stúkunni þegar hann sá mjög svo ungt lið Liverpool slá Shrewsbury úr leik í FA-bikarnum.

Liverpool, sem er á toppi ensku úrvalsdeildarinnar, mætir Chelsea í 16-liða úrslitum bikarsins þökk sé mjög ungu liði sem tók þátt í leiknum í kvöld á meðan leikmenn aðalliðsins - nema Milner - voru í vetrarfríi.

Neil Critchley, þjálfari U23 liðs Liverpool, stýrði liðinu í leiknum áðan og hann talaði vel um Milner eftir hann.

„James Milner æfði með okkur í gær og spurði hvort hann mætti koma með á leikinn. Hann gaf leikmönnunum ráð í búningsklefanum fyrir leikinn og ég get ekki þakkað honum nóg," sagði Critchley.

Hér að neðan má sjá fagmanninn Milner á vellinum í kvöld.

Sjá einnig:
Guttarnir fögnuðu sigrinum fyrir framan The Kop



Athugasemdir
banner
banner
banner