Allegri orðaður við Man Utd - Modric að framlengja við Real Madrid
   þri 04. febrúar 2020 12:00
Elvar Geir Magnússon
Þrír leikmenn Man Utd nota fríið til að æfa aukalega
Lingard sýndi á Instagram myndband af þremenningunum í Dubai.
Lingard sýndi á Instagram myndband af þremenningunum í Dubai.
Mynd: Instagram
Leikmenn Manchester United eru í vetrarfríi en þrír leikmenn liðsins ákváðu að æfa aukalega í fríinu.

Það eru þeir Luke Shaw, Jesse Lingard og Diogo Dalot sem fóru í æfingabúðir í Dubai.

Manchester United er í fríi til laugardags en þá heldur liðið í stutta æfingaferð til Marbella á Spáni.

Odion Ighalo og Bruno Fernandes, sem komu til félagsins í lok janúargluggans, fara að sjálfsögðu með í þá æfingaferð.

Manchester United er í sjöunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar, sex stigum frá Meistaradeildarsæti.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner