Fjórir uppaldir í byrjunarliðinu hjá Fram
„Heilt yfir þá var ég ekkert óánægður með frammistöðu liðsins," sagði Ásmundur Arnarsson, þjálfari Fram, eftir 3-1 tap gegn Haukum í dag.
Fram var 1-0 undir í hálfleik, en náðu að jafna um miðjan seinni hálfleikinn. Haukar svöruðu hins vegar með tveimur mörkum strax á eftir og Ásmundur segir að það hafi verið þrjú augnablik þar sem liðið hans hafi gleymt sér.
Fram var 1-0 undir í hálfleik, en náðu að jafna um miðjan seinni hálfleikinn. Haukar svöruðu hins vegar með tveimur mörkum strax á eftir og Ásmundur segir að það hafi verið þrjú augnablik þar sem liðið hans hafi gleymt sér.
Lestu um leikinn: Haukar 3 - 1 Fram
Það eru þrjú augnablik þar sem við gleymum okkur og færum þeim gríðarlega ódýr mörk. Mér fannst við heilt yfir betri aðilinn í leiknum, fáum þrjú fjögur mjög góð færi og ég man varla eftir færum frá þeim heldur en mörkunum," hélt Ásmundur áfram.
Það hefur verið mikil leikmannavelta hjá Fram undanfarin ár, en í byrjunarliðinu í dag voru fjórir uppaldir leikmenn. Ásmundur segir að það hafi verið eitt af markmiðum sumarsins að byggja upp leikmenn sem hafa komið upp hjá Fram.
„Það hefur mikið verið talað um leikmannaveltu, en leynt og ljóst erum við með tvö markmið fyrir sumarið, við ætluðum að búa til gott lið sem að gæti keppt við öll önnur lið og tekið þátt í baráttu efstu liða, það var markmiðið. En jafnframt vildum við byggja upp okkar menn, okkar kjarna sem að getur haldið áfram svo að þessi leikmannavelta fari að hægjast á hjá klúbbnum."
Ásmundur segir að markmiðið sé einfalt fyrir lokasprettinn, að tína upp eins mörg stig og mögulegt er.
„Við þurfum bara að tína upp eins mörg stig og við mögulega getum og við horfum bara á einn leik í einu í því."
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Stöðutaflan
| L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | |























