Sancho, Sesko, Mac Allister, Ten Hag, Raya og fleiri góðir koma við sögu
banner
   mán 07. janúar 2019 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Lineker: Alexander-Arnold of góður til að vera bakvörður
Mynd: Getty Images
Gary Lineker hefur miklar mætur á Trent Alexander-Arnold, ungum hægri bakverði Liverpool.

Alexander-Arnold hefur sýnt gríðarlega mikla hæfileika í hæsta gæðaflokki undanfarið ár og er mikilvægur hlekkur í gríðarlega sterku liði Liverpool.

Bakvörðurinn hefur verið að gefa magnaðar sendingar og átti hann eina slíka í 2-1 tapi gegn Englandsmeisturum Manchester City í síðustu viku sem hann fékk mikið lof fyrir.

„Stórkostlegt spil hjá Liverpool. Að mínu mati er Trent Alexander-Arnold of góður fótbolta til að spila sem bakvörður. Hann hlýtur að enda sem miðjumaður," skrifaði Lineker um markið sem Liverpool skoraði á Twitter.

Svipað hefur verið sagt um Virgil van Dijk sem er með afar góðan hægri fót og leikskilning.
Athugasemdir
banner
banner
banner