Gallagher á lán til Man Utd? - Villa hefur áhuga á Johnson - Tottenham hefur hætt við að reyna að fá Semenyo
Jóladagatalið: Kristján Óli eftir að hafa skorað ljótasta markið á ferlinum
Jóladagatalið: Auðunn Blöndal og Gaui Þórðar í geitungavandræðum
Ísak bendir á augljóst vandamál: Erum ekki nógu góðir þar
Jóladagatalið: Allir á þjóðhátið, það er skylda hjá mér!
Æfingaleikur: Aron Kristófer skoraði frá miðju gegn Leikni
Jóladagatalið: Þið vitið aldrei neitt um okkur
„Láki tengdi okkur við góðan mann erlendis"
Ævintýraþjálfari Völsungs: Þegar þú ferðast um heiminn verður þú að taka ákvarðanir hratt
Ólafur Ingi: Heilt yfir stoltur en fannst við vera pínu klaufar
Margt í gangi í hausnum á Damir fyrir leikinn - „Spurðu þá sem stjórna klúbbnum“
Höskuldur: Þau eru ekkert verðugri en við að vera þarna
Anton Ari: Sannaði fyrir mér að við áttum alveg erindi hingað
Jóladagatalið: Frasabók Margrétar Láru
Arnór Gauti: Þetta er bara sturlun
Sá fyrir sér að ljúka ferlinum með Blikum: Því miður vildi klúbburinn leita eitthvað annað
Kiddi Jóns framlengir - Var í viðræðum við annað félag
Jóladagatalið: Elínborg gaf viðtal í sturtu eftir leik
Fer yfir næstu skref á Laugardalsvelli - „Setjum mikla pressu á þetta“
Jóladagatalið: Hugleysingjar dauðans
Jóladagatalið: Eiður Smári gekk út úr viðtali
   sun 10. júlí 2022 20:10
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Manchester
Alexandra: Beint af æfingasvæðinu, Agla María yfir á fjær
Icelandair
Alexandra á æfingu í gær.
Alexandra á æfingu í gær.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ég er ánægð með stigið en mér fannst við eiga þrjú stig skilið," sagði Alexandra Jóhannsdóttir, miðjumaður Íslands, eftir jafntefli gegn Belgíu í fyrsta leik á EM.

„Mér fannst stelpurnar flottar í dag og það er pirrandi að fá ekki öll stigin."

Lestu um leikinn: Belgía 1 -  1 Ísland

Alexandra kom inn á undir lokin. Var pirrandi að byrja á bekknum?

„Það er alltaf pirrandi að byrja á bekknum. Ég held að við allar myndum segja það sama við því, en það var flott að fá nokkrar mínútur."

Var tækifæri til að stela þremur stigum undir lokin? „Ég fékk góðan séns til að stela þessu. Þetta var beint af æfingasvæðinu; Agla María yfir á fjær en þetta féll ekki í dag. Kannski gerist það í næsta leik."

Alexandra segir að þetta sé ekki búið þrátt fyrir að liðið hafi ekki tekið sigur í þessum leik. Hægt er að sjá allt viðtalið hér að ofan.
Athugasemdir
banner