Kobbie Mainoo, Antoine Semenyo, Brennan Johnson, Marcus Rashford og fleiri koma við sögu
banner
   sun 21. desember 2025 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Æfingaleikur: Víkingur skoraði sjö gegn Fylki
Kvenaboltinn
Emma Steinsen setti tvennu.
Emma Steinsen setti tvennu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingur R. 7 - 2 Fylkir
Mörk Víkings:
Bergdís Sveinsdóttir (2)
Emma Steinsen Jónsdóttir (2)
Dagný Rún Pétursdóttir
Jóhanna Elín Halldórsdóttir
Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir

Víkingur R. fór létt með Fylki er liðin mættust í æfingaleik í gær þar sem heimakonur rúlluðu yfir Árbæinga í níu marka leik.

Bergdís Sveinsdóttir og Emma Steinsen Jónsdóttir voru atkvæðamestar með tvennu á haus og svo komust Dagný Rún Pétursdóttir, Jóhanna Elín Halldórsdóttir og hin þaulreynda Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir einnig á blað í 7-2 sigri.

„Frábær byrjun á undirbúningstímabilinu hjá stelpunum og frábær endir á árinu 2025. Sjáumst á nýju ári kæru Víkingar," segir í færslu frá Víkingi.
Athugasemdir
banner
banner