Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
banner
   mið 12. maí 2021 20:46
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Haukur Heiðar verkjalaus: Get ekki beitt mér eins og áður
Haukur Heiðar Hauksson.
Haukur Heiðar Hauksson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Haukur Heiðar Hauksson spilaði 75 mínútur þegar KA vann 3-0 sigur á Leikni í Pepsi Max-deildinni í dag.

„Það er bara geggjað að fylgja eftir góðum sigri á móti KR og taka Leikni 3-0. Ég er mjög sáttur með stigin þrjú," sagði Haukur.

Lestu um leikinn: KA 3 -  0 Leiknir R.

„Við hefðum mátt gera betur með boltann, við fengum stöður þar sem við hefðum mátt gera betur en á endanum er þetta 3-0 sigur. Við höfum spilað betur en við skiluðum þessum heim."

Haukur hefur háð mikla baráttu við meiðsli undanfarin ár en hann var að byrja fyrsta leik sinn í sumar, í dag.

„Staðan er bara góð. Ég er verkjalaus núna. Ég er búinn að vera í mörg ár að kljást við erfið meiðsli og alltaf miklir verkir. Ég er að njóta þess að vera í fótbolta án þess að finna fyrir miklum verkjum en auðvitað get ég ekki beitt mér eins og áður."

Allt viðtalið má sjá hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner