Óvíst hvort Casemiro og Maguire verði áfram hjá Man Utd - Glasner ætlar ekki að framlengja - Joelinton gæti farið frá Newcastle
Kristall Máni: Hef alltaf vitað að fótboltahæfileikarnir hverfa ekki
Jóladagatalið: Stólar fullir af hálfvitum
Jóladagatalið: „Vonandi hefur Gummi Ben eitthvað lært af þessu“
Kominn í grænt eftir eitt tímabil í Svíþjóð - „Eftir það tók ég ákvörðun um að fara annað“
Ætlaði ekki að koma heim - „Þegar ég talaði við Óskar lá þetta fyrir“
Jóladagatalið: Kristján Óli eftir að hafa skorað ljótasta markið á ferlinum
Jóladagatalið: Auðunn Blöndal og Gaui Þórðar í geitungavandræðum
Ísak bendir á augljóst vandamál: Erum ekki nógu góðir þar
Jóladagatalið: Allir á þjóðhátið, það er skylda hjá mér!
Æfingaleikur: Aron Kristófer skoraði frá miðju gegn Leikni
Jóladagatalið: Þið vitið aldrei neitt um okkur
„Láki tengdi okkur við góðan mann erlendis"
Ævintýraþjálfari Völsungs: Þegar þú ferðast um heiminn verður þú að taka ákvarðanir hratt
Ólafur Ingi: Heilt yfir stoltur en fannst við vera pínu klaufar
Margt í gangi í hausnum á Damir fyrir leikinn - „Spurðu þá sem stjórna klúbbnum“
Höskuldur: Þau eru ekkert verðugri en við að vera þarna
Anton Ari: Sannaði fyrir mér að við áttum alveg erindi hingað
Jóladagatalið: Frasabók Margrétar Láru
Arnór Gauti: Þetta er bara sturlun
Sá fyrir sér að ljúka ferlinum með Blikum: Því miður vildi klúbburinn leita eitthvað annað
   þri 13. ágúst 2019 21:38
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Birta Georgsdóttir: Stefnum á að vinna deildina
Kvenaboltinn
Birta Georgsdóttir
Birta Georgsdóttir
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
„Ég er hrikalega ánægð með þrjú stig og þetta var það sem við lögðum upp með fyrir leikinn og við gerðum það gríðarlega vel", sagði Birta Georgsdóttir, einn af markaskorurum FH, eftir 3-0 sigur FH gegn Grindavík í Inkasso-deild kvenna í kvöld.

Lestu um leikinn: FH 3 - 0 Grindavík.

FH stýrði leiknum að mestum hluta í fyrri hálfleik en Grindavík ógnaði með skyndisóknum sínum. Birta var spurð út í hvernig henni leið að hafa náð að koma með forskot inn í hálfleikinn.

„Það var góð tilfinning að vera yfir í hálfleik. Við töluðum svo um það í hálfleik að halda áfram að setja á þær í seinni hálfleiknum. Við þurftum svolítinn tíma til þess að brjóta þær á bak aftur enda voru þær hrikalega öflugar."

Birta skoraði sitt níunda mark í deildinni í kvöld og er markahæst FH kvenna. Hún var spurð hvort hún væri í samkeppni við liðsfélaga sína.

„Nei nei maður gerir bara sitt besta."

Birta var þá að lokum spurð út í endasprettinn en FH er í harðri baráttu við Þrótt R. um sigur í Inkasso-deild kvenna.

„Við stefnum á að vinna deildina og ætlum að halda ótrauðar áfram fram að síðasta leik."

Viðtalið í heild sinni má sjá hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner