Selfoss gerði 2-2 jafntefli við Þrótt í 1. deildinni í dag eftir að hafa komist tveimur mörkum yfir. Gunnar Guðmundsson, þjálfari Selfyssinga, ræddi við Fótbolta.net strax eftir leikinn.
Lestu um leikinn: Selfoss 2 - 2 Þróttur R.
„Þetta eru tvö töpuð stig, ekkert annað. Við vorum með þetta í höndunum en köstum þessu svo frá okkur. Ég átta mig ekki alveg á því hvað gerðist," sagði Gunnar.
„Það er alltaf fullt af jákvæðum hlutum sem hægt er að taka út úr leiknum en það gefur stigin ekki til baka."
Gunnar segist sáttur við núverandi mannskap og býst ekki við því að bæta við sig leikmönnum í glugganum. Viðtalið má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan.























