Mo Salah til Sádi? - Alonso klár ef skilyrði verða uppfyllt - Bastoni til Barca eða Liverpool - Hafa ekki áhyggjur af Rashford
banner
   mið 23. febrúar 2022 23:57
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Patrik: Staðan í landsliðinu bæði mjög opin og skýr
Icelandair
Hannes og Patrik á landsliðsæfingu - Hver tekur við af Hannesi?
Hannes og Patrik á landsliðsæfingu - Hver tekur við af Hannesi?
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Elías Rafn Ólafsson og Patrik Sigurður Gunnarsson
Elías Rafn Ólafsson og Patrik Sigurður Gunnarsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Rúnar Alex Rúnarsson hefur verið í landsliðshópnum undanfarin ár. Nú eru þeir Patrik og Elías komnir inn.
Rúnar Alex Rúnarsson hefur verið í landsliðshópnum undanfarin ár. Nú eru þeir Patrik og Elías komnir inn.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Lokaleikur Hannesar var gegn Þýskalandi í september. Það var leikur númer 77.
Lokaleikur Hannesar var gegn Þýskalandi í september. Það var leikur númer 77.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Patrik Sigurður Gunnarsson er 21 árs gamall markvörður sem uppalinn er hjá Breiðabliki en fór ungur út til Brentford á Englandi. Í janúar var hann svo seldur til Noregs og skrifaði hann undir fjögurra ára samning við Viking.

Patrik um skiptin til Viking:
Sagði mér hversu mikið félagið vildi fá mig

Patrik á að baki tólf U21 árs landsleiki en bíður ennþá eftir sínu fyrsta tækifæri með A-landsliðinu. Hann var fyrst valinn í landsliðshópinn í janúar 2020 og frá og með ágúst á síðasta ári hefur hann verið valinn í alla A-landsliðshópa.

Þessir leikir voru fyrir Elías til að spila
Eins og margir vita þá hafði Patrik verið á undan Elíasi Rafni Ólafssyni í goggunnarröðinni í yngri landsliðinum. Patrik var aðalmarkvörður U21 árs landsliðins og var kallaður í A-landsliðið þegar Elías átti að verja mark U21 árs liðsins í undankeppninni síðasta haust.

Málin þróuðust þannig að Elías greip tækifærið hjá sínu félagsliði, Midtjylland, og er í kjölfarið byrjaður að spila með A-landsliðinu í október. Hvernig upplifði Patrik það?

„Ég hef verið númer eitt í U17, U18, U19 og U21 en það skiptir engu máli hvað þú gerðir þar þegar komið er inn í A-landsliðið. Það getur hjálpað þér að komast fyrr inn í hópinn en þegar lengra er komið þá skiptir það engu máli. Maður er búinn að sjá endalaust af dæmum um það að leikmenn spili ekkert fyrir yngri landsliðin en spili svo fyrir A-landsliðin og einnig öfugt. Það er ekkert óeðlilegt við það," sagði Patrik.

„Staðan í landsliðinu er bara skýr eins og Arnar hefur sagt frá sjálfur. Hann ætlaði sér að taka eitt og hálft ár í að velja næsta aðalmarkvörð fyrir undankeppnina sem hefst í mars eftir rúmt ár. Þessir fjórir leikir voru fyrir Elías til að spila."

„Ég hefði að öllum líkindum átt að fá þessa tvo æfingaleiki í janúar til að sýna mig en því miður var ég meiddur þar. Staðan er ennþá mjög opin og ennþá ár í undankeppnina, það getur mjög mikið gerst á þessu ári."

„Elías er búinn að fá sitt tækifæri núna og ég geri ráð fyrir að við hinir fáum tækifæri til að sýna okkur á þessu ári. Svo verður bara ákvörðun tekin."


Virkilega vel gert hjá Ella
Patrik var aðeins spurður út í innkomu Elíasar hjá Midtjylland. Þeir eru í samkeppni í landsliðinu en getur Patrik samglaðst Elíasi fyrir spilamennskuna undanfarna mánuði?

„Já, auðvitað! Það er virkilega vel gert hjá Ella að ná þessum áfanga. Hann fær tækifærið þegar [Jonas] Lössl meiðist og liðinu gengur mjög vel og Elíasi sömuleiðis. Hann gerði virkilega vel og það samgleðjast allir öllum sem gera vel. Ég er alveg viss um að hann hafi samglaðst mér þegar ég átti mín góðu augnablik í Danmörku þannig það fer bara í báðar áttir."

Gott að hafa fengið að læra af Hannesi
Patrik var í landsliðshópnum með Hannesi Þór Halldórssyni í september. Hvernig var að vera með honum í landsliðshópi?

„Það var frábært að hafa verið með Hannesi. Hann er einn besti landsliðsmarkvörður sem Ísland hefur átt og spilaði þetta marga leiki, sló metið yfir flesta landsleiki markvarðar sem er frábær og merkilegur árangur hjá honum. Það sýnir hversu vel hann gerði á sínum ferli."

„Það var virkilega gott fyrir mig sem ungan markvörð að hafa fengið að njóta góðs af því að vera í kringum hann og læra af honum í þessi skipti sem ég fékk að vera í hóp með honum,"
sagði Patrik.
Slapp
Athugasemdir