Mo Salah til Sádi? - Alonso klár ef skilyrði verða uppfyllt - Bastoni til Barca eða Liverpool - Hafa ekki áhyggjur af Rashford
banner
laugardagur 28. mars
Vináttulandsleikur
fimmtudagur 26. mars
Mjólkurbikar karla
Undankeppni EM U21
laugardagur 21. mars
Bose-bikarinn Úrslit
Úrslit Lengjubikarsins
miðvikudagur 18. mars
Úrslit Þungavigtarbikarsins
þriðjudagur 17. mars
Undanúrslit Lengjubikarsins
laugardagur 14. mars
laugardagur 7. mars
Undankeppni HM kvenna
þriðjudagur 3. mars
fimmtudagur 26. febrúar
Vináttulandsleikur
miðvikudagur 25. febrúar
Úrslitaleikur Reykjavíkurmótsins
miðvikudagur 18. febrúar
Evrópubikarinn - 8-liða úrslit
laugardagur 14. febrúar
Lengjubikar karla - A-deild, riðill 1
miðvikudagur 11. febrúar
Evrópubikarinn - 8-liða úrslit
fimmtudagur 18. desember
Sambandsdeildin
fimmtudagur 27. nóvember
miðvikudagur 19. nóvember
Evrópubikarinn - 16-liða úrslit
sunnudagur 16. nóvember
Undankeppni HM
fimmtudagur 13. nóvember
Undankeppni EM U21
Undankeppni HM
miðvikudagur 12. nóvember
Evrópubikarinn - 16-liða úrslit
fimmtudagur 6. nóvember
Sambandsdeildin
miðvikudagur 29. október
Þjóðadeild kvenna - Umspil
sunnudagur 26. október
Besta-deild karla - Efri hluti
föstudagur 24. október
Þjóðadeild kvenna - Umspil
fimmtudagur 23. október
Sambandsdeildin
miðvikudagur 22. október
Evrópukeppni unglingaliða
mánudagur 20. október
Besta-deild karla - Efri hluti
miðvikudagur 15. október
Evrópubikar kvenna
þriðjudagur 14. október
Undankeppni EM U21
mánudagur 13. október
Undankeppni HM
laugardagur 11. október
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
Besta-deild kvenna - Efri hluti
föstudagur 10. október
Undankeppni HM
Undankeppni EM U21
fimmtudagur 9. október
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
miðvikudagur 8. október
Evrópubikar kvenna
mánudagur 6. október
Besta-deild kvenna - Efri hluti
sunnudagur 5. október
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
Besta-deild kvenna - Efri hluti
laugardagur 4. október
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
föstudagur 3. október
Besta-deild kvenna - Efri hluti
fimmtudagur 2. október
Sambandsdeildin
miðvikudagur 1. október
Besta-deild kvenna - Efri hluti
Evrópukeppni unglingaliða
þriðjudagur 30. september
Besta-deild kvenna - Efri hluti
mánudagur 29. september
Besta-deild karla - Efri hluti
sunnudagur 28. september
Besta-deild karla - Neðri hluti
laugardagur 27. september
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
Lengjudeild karla - Umspil
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
föstudagur 26. september
Fótbolti.net bikarinn
mánudagur 22. september
Besta-deild karla - Efri hluti
miðvikudagur 17. september
Lengjudeild karla - Umspil
föstudagur 27. mars
Vináttuleikur
Kólumbía 1 - 2 Króatía
Japan U-21 - USA U-21 - 06:00
HM umspil
mán 21.feb 2022 23:55 Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Magazine image

Sagði mér hversu mikið félagið vildi fá mig

Patrik Sigurður Gunnarsson var keyptur til norska félagsins Viking frá enska félaginu Brentford í síðasta mánuði. Patrik er 21 árs markvörður sem hafði verið á mála hjá Brentford síðan 2018.

Hann er uppalinn í Breiðabliki og lék með ÍR á láni áður en Brentford keypti hann. Hann lék árið 2019 sinn fyrsta leik í Championship deildinni. Árið 2020 var hann lánaður til Southend og seinni hluta ársins til Viborg í Danmörku. Í janúar 2021 var hann lánaður til Silkeborg og seinni hluta árs til Viking.

Ég verð að spila ef ég ætla að eiga einhvern möguleika á því að spila fyrir landsliðið.
Ég verð að spila ef ég ætla að eiga einhvern möguleika á því að spila fyrir landsliðið.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Voru heiðarlegir með það að þeir ætla reyna bjóða honum nýjan langtímasamning
Voru heiðarlegir með það að þeir ætla reyna bjóða honum nýjan langtímasamning
Mynd/Getty Images
Alvaro Fernandez var kominn til félagsins á láni og var í markinu
Alvaro Fernandez var kominn til félagsins á láni og var í markinu
Mynd/EPA
Félagið var tilbúið að gera nákvæmlega allt fyrir mig og þar var planið að ég kæmi inn og myndi bara spila.
Félagið var tilbúið að gera nákvæmlega allt fyrir mig og þar var planið að ég kæmi inn og myndi bara spila.
Mynd/Viking
Við töldum að það væri betra fyrir mig að fara og spila í stað þess að sitja á bekknum
Við töldum að það væri betra fyrir mig að fara og spila í stað þess að sitja á bekknum
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sagði við mig að ef aðstæðurnar hefðu verið þannig þá hefði ég fengið 100% traust fyrir því að gera það sem Jonas var fenginn inn til að gera
Sagði við mig að ef aðstæðurnar hefðu verið þannig þá hefði ég fengið 100% traust fyrir því að gera það sem Jonas var fenginn inn til að gera
Mynd/EPA
Þeir hjá Viking voru búnir að vera í sambandi við Agga umboðsmann frá því um miðjan desember áður en kaupin gengu í gegn.
Þeir hjá Viking voru búnir að vera í sambandi við Agga umboðsmann frá því um miðjan desember áður en kaupin gengu í gegn.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ég var látinn vita af því að það væri allt reynt til að fá mig til baka en þetta stoppaði allt á úrvalsdeildinni
Ég var látinn vita af því að það væri allt reynt til að fá mig til baka en þetta stoppaði allt á úrvalsdeildinni
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Erfiðasta ákvörðun var að fara frá Brentford, það er félagið sem ég fékk fyrsta tækifærið.
Erfiðasta ákvörðun var að fara frá Brentford, það er félagið sem ég fékk fyrsta tækifærið.
Mynd/Getty Images
Silkeborg vildi fá mig strax síðasta sumar og voru tilbúnir að bíða talsvert lengi.
Silkeborg vildi fá mig strax síðasta sumar og voru tilbúnir að bíða talsvert lengi.
Mynd/Silkeborg
Var búinn að vera hjá félaginu í tæp fjögur ár og orðinn einn af þeim leikmönnum sem höfðu verið hvað lengst hjá félaginu
Var búinn að vera hjá félaginu í tæp fjögur ár og orðinn einn af þeim leikmönnum sem höfðu verið hvað lengst hjá félaginu
Mynd/Getty Images
Það sem tók lengstan tíma í ferlinu var að velja rétt skref fyrir mig
Það sem tók lengstan tíma í ferlinu var að velja rétt skref fyrir mig
Mynd/Getty Images
Stóð sig frábærlega hjá Viborg og var oftar en einu sinni valinn maður leiksins.
Stóð sig frábærlega hjá Viborg og var oftar en einu sinni valinn maður leiksins.
Mynd/Viborg
Patrik fór á svokölluðu neyðarláni til Southend snemma árs 2020.
Patrik fór á svokölluðu neyðarláni til Southend snemma árs 2020.
Mynd/Southend
Fyrstu keppnisleikir í meistaraflokki komu með ÍR.
Fyrstu keppnisleikir í meistaraflokki komu með ÍR.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ég var búinn að ákveða að ég vildi fá að fara einhvert til þess að spila - Þá er Lössl fenginn inn
Ég var búinn að ákveða að ég vildi fá að fara einhvert til þess að spila - Þá er Lössl fenginn inn
Mynd/EPA
Ég, mitt nánasta fólk og Brentford töldum að það væri best að fara til nýs félags.
Ég, mitt nánasta fólk og Brentford töldum að það væri best að fara til nýs félags.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Patrik 'feikaði' meiðsli á U21 árs æfingu í fyrra. Í dag er hann að koma til baka eftir meiðsli á ökkla.
Patrik 'feikaði' meiðsli á U21 árs æfingu í fyrra. Í dag er hann að koma til baka eftir meiðsli á ökkla.
Mynd/Fótbolti.net - Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
 Við ákváðum að hafna því þrátt fyrir að það sé mögulega deild í hærri gæðaflokki og mögulega betri samningur.
Við ákváðum að hafna því þrátt fyrir að það sé mögulega deild í hærri gæðaflokki og mögulega betri samningur.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Patrik ræddi við Fótbolta.net fyrir helgi um félagaskiptin til Viking. Hann ræddi einnig um landsliðið og David Raya, aðalmarkvörð Brentford, og verða þeir hlutar viðtalsins birtir á næstu dögum.

Viking var í æfingaferð í Bandaríkjunum þegar fréttaritari ræddi við Patrik. „Við spiluðum gegn fínum liðum í MLS-deildinni. Við vorum í Portland og spiluðum á móti Portland, Salt Lake og Minnesota. Það var fínt fyrir liðið að prófa máta sig við öðruvísi tegund af fótbolta og deild sem er kannski óþekkt að mestu leyti innan Evrópu," sagði Patrik.

„Ég spilaði ekki af því ég er ennþá meiddur en er svona að koma til baka. Þetta er lokaundirbúningurinn fyrir norska tímabilið, við fórum til Spánar í janúar og núna framundan er norski bikarinn sem byrjar 12. mars."
„En þetta stoppaði allt á úrvalsdeildinni"
Brentford vildi sjá Patrik halda áfram inn á vellinum
Hvernig hafa fyrstu vikurnar sem leikmaður Viking verið?

„Fyrstu vikurnar eru búnar að vera góðar. Ég þekkti félagið, var á láni hér fyrir áramót og það var nokkuð auðvelt að koma sér fyrir aftur, þurfti ekki að kynnast öllum upp á nýtt enn eina ferðina. Það hefur gengið þokkalega þrátt fyrir meiðslin, maður hefur ekki getað gert allt sem maður vildi vegna þeirra en félagið er að sækja mig í einum tilgangi og það er til þess að spila. Þeir eru rólegir og gefa mér góðan tíma til að ná mér fyrir fyrsta leik."

Hvernig kom þetta til?

„Þetta gerist þannig að ég hef verið í burtu frá Brentford á láni síðasta eina og hálfa árið til fjögurra félaga; Southend, Viborg, Silkeborg og síðasta Viking. Það hefur gengið mjög vel og mér fannst vera kominn tímapunktur að fara frá Brentford og halda áfram að spila."

„Þegar ég settist niður með Brentford þá vildu þeir sjá mig halda áfram að spila. Þeir voru það ánægðir með mig að þeir settu það í mínar hendur hvort ég vildi fara aftur á lán. Þeir sögðu við mig að það væri ekkert endilega best fyrir leikmenn að vera alltaf að fara út á lán ár eftir ár. Það væri betra að skipta um félag. Brentford er með fyrsta kauprétt á mér og einnig með ákvæði um að geta keypt mig til baka, þeim fannst mikilvægt að hafa þann möguleika. Þeir sögðustu ætla að fylgjast vel með mér og taka svo stöðuna seinna meir."

„Ég held að það sé þannig að þegar Viking fær tilboð í mig þá á Brentford rétt á því að jafna það tilboð. Þeir geta líka held ég komið hvenær sem er og fengið mig til baka fyrir ákveðna upphæð. Mér finnst þetta fínt skref, að fara einhvert að spila, sérstaklega að fara frá Brentford og skrifa undir annars staðar í stað þess að halda áfram að fara á lán. Hjá Brentford hefði ég getað verið varamarkvörður sem hefði auðvitað verið heillandi og það lítur ekkert illa út út á við að vera varamarkvörður í úrvalsdeildinni. Ég, mitt nánasta fólk og Brentford töldum að það væri best að fara til nýs félags."

„Það hefði mögulega orðið þannig að ég myndi sitja á bekknum hjá Brentford næsta eina og hálfa árið því þeir hjá félaginu eru mjög tryggir aðalmarkverðinum David Raya og voru heiðarlegir með það að þeir ætla reyna bjóða honum nýjan langtímasamning, vilja halda honum sem lengst. Þeir vildu halda áfram að sjá mig vera inn á vellinum og spila leiki."


Nær að festa niður rætur og þarf ekki að búa í ferðatösku
Af hverju er ekki endilega best fyrir leikmann að vera alltaf á láni frá sama félaginu?

„Eins og ég segi þá er ég búinn að fara fjórum sinnum á lán. Á þessum fjórum lánum, sem hafa verið á síðustu tveimur árum, þá bjó maður eiginlega í ferðatösku og var alltaf að kynnast nýju liði og leikmönnum á sex mánaða fresti. Til skamms tíma litið var það ekkert mál en Brentford benti mér á að yfir lengri tíma er það kannski ekki ákjósanleg staða fyrir ungan leikmann að vera í."

„Ég vann mér inn þá virðingu með velgegni að fá að fara þá annað og vera aðalmarkmarkmaður í lengri tíma en sex mánuði í senn. Næ þá að festa niður rætur, búa til heimili og ekki búa í ferðatöskunni. Að sama skapi hjálpaði það mér mjög mikið að fara á þessi lán og bætti ég mig mjög mikið innan sem utan vallar en á þessum tímapunkti er ég sammála Brentford um að fara einhvert þar sem ég er markmaður númer eitt og get notið þess að spila fótbolta í lengra en sex mánuði i senn."


Erfitt að fara þaðan sem fékk fyrsta tækifærið
Var erfið ákvörðun að fara frá Brentford og tók langan tíma að melta hvort þetta væri það rétta í stöðunni?

„Erfiðasta ákvörðun var að fara frá Brentford, það er félagið sem ég fékk fyrsta tækifærið. Ég vann mig nokkuð hratt upp hjá félaginu og spilaði minn fyrsta leik átján ára gamall í Championship. Ég var búinn að vera hjá félaginu í tæp fjögur ár og orðinn einn af þeim leikmönnum sem höfðu verið hvað lengst hjá félaginu því það hafa verið miklar breytingar. Það voru aðallega tengingarnar við félagið sem maður hafði búið til síðustu ár sem var erfiðast að ganga í burtu frá. Fyrir mig sjálfan og ferilinn var þetta hins vegar ekki erfið ákvörðun - ég vildi fara og spila."

„Það sem tók lengstan tíma í ferlinu var að velja rétt skref fyrir mig. Ég hafði úr mörgu að velja og svo meiðslin sem ég lenti í á æfingu hjá Brentford fyrir rúmum mánuði. Það setti aðeins strik í reikninginn og breytti aðstæðum hjá sumum af félögunum sem vildu fá mig."


Þá veistu að félagið hefur trú á þér
Þú nefnir að Viking var ekki eina félagið sem hafði áhuga. Komu einhver önnur spennandi tilboð á þitt borð?

„Án þess að fara út í einstaka félög þá kom mikill áhugi frá góðum félögum í Svíþjóð, öðrum félögum í Superliga og liðum sem stefna upp úr League One (ensku C-deildinni). Mest spennandi var áhugi úr MLS-deildinni, eitt félag þar sýndi mikinn áhuga og fór það svolítið langt. Við ákváðum að hafna því þrátt fyrir að það sé mögulega deild í hærri gæðaflokki og mögulega betri samningur."

„Ég þekki umhverfið hjá Viking og hvaða plön félagið eru með varðandi mig og mína framtíð. Ég er á fjögurra ára samningi en það þýðir ekki að ég muni endilega vera öll árin í Noregi. Viking horfir á mig sem mjög efnilegan leikmann og mögulega stóra söluvöru eftir nokkur ár. Það traust og jákvæða pressan sýnir að ég sé í miklum metu og fái að spila helling. Á þessum tímapunkti snýst þetta bara um að spila, það er það eina sem skiptir mig máli núna bæði upp á að taka næsta skref á ferlinum og upp á landsliðið. Ég verð að spila ef ég ætla að eiga einhvern möguleika á því að spila fyrir landsliðið."

„Viking er ekki þekkt fyrir að kaupa menn á háar upphæðir, meira í því að fá menn til félagsins á lítinn pening eða frítt og selja svo á hærri upphæðir eftir einhvern tíma. Þeir voru tilbúnir að eyða þessum upphæðum í mig, sem þeir hafa mjög sjaldan gert undanfarin ár, það sagði mér mikið um hversu mikið félagið hafði fylgst með mér og vildi fá mig. Þegar félag kemur með allt þetta á borðið þá veistu að það hefur trú á þér og þú veist að þú munt að öllum líkindum spila."

„Það er kostur að sjá hvaða félög sýndu mér áhuga núna, ef þau koma upp aftur í framtíðinni þá veit ég að þau hafa fylgst lengi með mér."


Talað hefur verið um að kaupverðið á Patrik séu ríflega 110 milljónir króna.

Vildu kaupa Patrik strax síðasta haust
Eftir lánssamninginn hjá Viking vissiru strax að félagið vildi kaupa þig frá Brentford?

„Já, eiginlega áður en lánið byrjaði voru þeir byrjaðir að tala um að þeir vildu fá mig alfarið. Það sýndi gott merki í ákvörðunartökunni. Þeir sögðu við mig á fyrsta fundingum með yfirmanni íþróttamála eftir að ég kom að þeir myndu vilja kaupa mig. Þeir hjá Viking voru búnir að vera í sambandi við Agga umboðsmann frá því um miðjan desember áður en kaupin gengu í gegn. Við vildum ekki taka neinar ákvarðanir strax til að halda öllu opnu og til að sjá fleiri möguleika sem gætu komið upp. Það gerðist en engu að síður varð Viking fyrir valinu."

Hvernig vissi Viking af þér sem leikmanni áður en þú varst fenginn til félagsins?

„Þeir sögðu við mig að þeir hafa fylgst með mér í svolítinn tíma, frá því í U19 allavega. Þeir sáu mig spila í Danmörku þar sem allt gekk upp hjá mér og voru hrifnir af því sem þeir sáu. Miðað við ungan aldur voru þeir mjög hrifnir og ég held að frammistaðan í Danmörku hafi gripið þá hvað helst."

Síðasta sumar, eftir frábært ár með Viborg og Silkeborg í dönsku B-deildinni, höfðu þau áhuga á því að fá þig aftur?

„Já, bæði Silkeborg og Viborg vildu fá mig. Silkeborg vildi fá mig strax síðasta sumar og voru tilbúnir að bíða talsvert lengi. Brentford gat ekki gefið skýrt svar nægilega snemma fyrir Silkeborg og því varð ekkert úr því. Brentford var þannig að við David Raya vorum einu tveir markverðirnir og ég byrjaði tímabilið í ensku úrvalsdeildinni á bekknum. Brentford þurftu á mér að halda og gátu þess vegna ekki hleypt mér í burtu."

„Viborg vildi sömuleiðis fá mig, á sama tíma og Viking vildi fá mig. Ég þekkti allt hjá Viborg en það sem heillaði mig meira við Viking var hversu mikið félagið vildi fá mig. Félagið var tilbúið að gera nákvæmlega allt fyrir mig og þar var planið að ég kæmi inn og myndi bara spila. Þess vegna völdum við að fara til Viking. Það vaknaði einnig upp áhugi frá Danmörku núna í janúar."


Sögðu að þetta væri eins og daglegt brauð
Hvernig er staðan á þér núna og hvenær býstu við því að byrja að spila?

„Viking var það félag sem lagði mestu áhersluna á að menn væru tilbúnir að bíða eftir því að ég yrði heill heilsu og klár í slaginn. Það var mér mjög mikilvægt."

„Eins og staðan er í dag þá er ég á nokkuð góðri leið. Það eru komnar fimm vikur síðan ég varð fyrir meiðslunum og það var talað um 6-8 vikna ferli. Ég er byrjaður að gera allt nema að sparka langar sendingar. Ef allt gengur að óskum þá vonast sjúkraþjálfararnir eftir því að ég nái einum æfingaleik öðru hvoru megin við mánaðarmótin og ætti svo að vera klár í bikarinn 12. mars. Deildin byrjar svo 2. apríl og við spilum 2-3 leiki í bikarnum fyrir það ef við klárum okkar verkefni í þeirri keppni."


Hvað gerðist þegar þú meiddist?

„Ég var að gera aðeins auka eftir æfingu hjá Brentford. Menn voru að æfa afgreiðslurnar sínar og fyrigjafirnar. Það kemur skot á mig einn á móti einum af stuttu færi. Ég set út löppina og ver boltann en það myndast snúningur á ökklann. Sjúkraþjálfararnir sögðu að þetta væri eins og daglegt brauð, vissu nákvæmlega hvað þetta væri og hversu langan tíma það tæki að jafna sig."

Treystu honum að leysa það hlutverk sem Lössl hefur fengið
Jonas Lössl er að koma til félagsins um það leyti sem þú meiðist. Af hverju helduru að hann hafi verið fenginn?

„Jú, hann var kominn því um tveimur vikum áður var ég búinn að ákveða að ég vildi fá að fara einhvert til þess að spila. Þá er Lössl fenginn inn. Thomas Frank sagði við mig að ef aðstæðurnar hefðu verið þannig þá hefði ég fengið 100% traust fyrir því að gera það sem Jonas var fenginn inn til að gera. Það hlutverk er að setja á bekknum fyrir utan 1-2 leiki í byrjun. Við töldum að það væri betra fyrir mig að fara og spila í stað þess að sitja á bekknum. Þeir sögðu að það væri betra að fá inn eldri mann sem væri tilbúinn að sitja á bekknum."

Skrítið og skondið atvik
Lánstíminn hjá Viking, hvernig sérðu þann tíma og hver er ástæðan fyrir því að þú spilaðir ekki alla leiki?

„Ég kem til félagsins til að spila og spila fyrstu 3-4 leikina. Ég fæ svo rautt spjald og er svo ekki í liðinu í 3-4 leiki. Inn í því er leikbann og í kjölfarið varð ég veikur og gat ekki æft af krafti með liðinu. Þrátt fyrir það sat ég á bekknum í tvo leiki af því það var enginn annar markvörður. Þegar ég var orðinn ferskur kom ég aftur inn og þannig var það."

Það varð umtalað atvik sem gerðist undir lok leiks gegn Kristiansund. Fréttaritari myndi lýsa því sem skondnu og skrítnu atviki. Samherji Patriks fékk rautt spjald þegar hann ýtti í Patrik sem féll til jarðar.

„Ég hef lítið hugsað út í þetta síðan og lítið að segja um þetta. Þetta var bara búið strax, menn hlógu bara að þessu og við höfum ekki talað um þetta síðan af því það þarf ekkert. Það er ekkert um að tala og er bara búið og gleymt og mun að sjálfsögðu ekki gerast aftur, hvorki hjá mér né honum."

Hvernig var að horfa á þetta atvik?

„Þetta var skrítið atvik og eins og þú sagðir skondið. Þetta var í hita leiksins og menn upplifðu þetta á mismunandi hátt. Við erum báðir áfram hjá félaginu og vorum farnir að hlæja að þessu daginn eftir. Við erum góðir vinir fyrir og eftir þetta atvik og höfum myndað öflugt teymi, ég og hafsentarnir tveir fyrir framan mig. Þannig það er ekkert vesen."

Ákvörðun dómarans að gefa rautt spjald fyrir þetta, veltuð þið því eitthvað fyrir ykkur?

„Nei, ég geri ráð fyrir því að þetta sé eðlileg niðurstaða án þess að þekkja dómarareglurnar varðandi svona atvik."

Búið að ákveða að Patrik færi á láni
Að endingu voru tveir tímapunktar frá því á seinni hluta síðasta árs sem fréttaritari var forvitinn um. Förum til baka til 24. ágúst, Brentford á deildabikarleik gegn Forest Green og Patrik var á bekknum. Af hverju spilaði hann ekki þann leik?

„Alvaro Fernandez var kominn til félagsins á láni og var í markinu. Á þessum tímapunkti var ég svo gott sem búinn að skrifa undir hjá Viking en Brentford hleypti ekki félagaskiptunum í gegn fyrr en undir lok mánaðarins. Félagið vildi halda mér fram yfir þennan bikarleik en ætluðu ekki að leyfa mér að spila hann af því ég var að fara. Það var sem sagt búið að ákveða fyrir þennan leik að ég væri á förum."

Stoppaði allt á úrvalsdeildinni
Seinni punkturinn eru meiðsli David Raya í október, það varð strax ljóst að hann yrði frá í nokkra mánuði. Fór það langt að Brentford reyndi að kalla Patrik til baka úr láni?

„Það fór mjög langt, Brentford vildi fá mig eins og skot til baka til þess að veita Alvaro samkeppni. Ég get alveg sagt það núna að það gekk ekki eins vel hjá honum menn höfðu vonast eftir. Það fór svo að ganga ekkert vel hjá Brentford og félagið setti enn meira púður að fá mig til baka. Ég var látinn vita af því að það væri allt reynt til að fá mig til baka en þetta stoppaði allt á úrvalsdeildinni. Það eru víst mun strangari reglur í úrvalsdeildinni heldur en t.d. í Championship varðandi það að kalla leikmenn til baka úr láni og fá leikheimild fyrir þá strax. Úrvalsdeildin hefði ekki veitt mér leikheimild fyrr en 1. janúar og á því stoppaði þetta. Brentford gerði allt sem félagið gat til að fá mig."

Það hefði verið skemmtilegt að sjá þig spila í úrvalsdeildinni.

„Já, það er alltaf hægt að vera voða vitur efir á og segja 'oh, andskotinn ég hefði ekki átt að fara lán heldur hefði átt að bíða'. En þá hefði David Raya kannski ekki meiðst og svona er þetta bara," sagði Patrik.


Athugasemdir
banner