Frábærar fréttir fyrir Tómas Bent og félaga
Skosku stórveldin Rangers og Celtic misstigu sig bæði í deildarleikjum gærdagsins sem eru frábærar fréttir fyrir Tómas Bent Magnússon og liðsfélaga hans í toppliði Hearts.
Hearts er spútnik lið tímabilsins í skosku deildinni og er með fjögurra stiga forystu í titilbaráttunni, þegar fimm umferðir eru í tvískiptingu deildarinnar.
Rangers er í öðru sæti eftir að hafa rétt svo bjargað jafntefli gegn tíu leikmönnum Livingston í gær. Heimamenn í liði Livingston voru ótrúlega heppnir að komast í tveggja marka forystu þrátt fyrir gífurlega yfirburði Rangers allan leikinn.
Heimamenn nýttu færin sín til hins ýtrasta til að komast í 2-0 áður en þeir misstu mann af velli með beint rautt spjald á 60. mínútu. Gestirnir frá Glasgow óðu í færum en tókst ekki að minnka muninn og jafna fyrr en á lokamínútum venjulegs leiktíma þegar Emmanuel Fernandez og Mikey Moore, lánsmaður frá Tottenham, náðu að skora sitthvort markið. Lokatölur urðu því 2-2.
Á sama tíma lentu tíu leikmenn Celtic í miklu basli gegn Hibernian og töpuðu að lokum á heimavelli. Gestirnir náðu forystunni í fyrri hálfleik en Celtic var sterkari aðilinn og jafnaði fyrir leikhlé.
Síðari hálfleikurinn var lokaðari og breyttust hlutirnir þegar Auston Trusty varnarmaður Celtic fékk að líta beint rautt spjald á 74. mínútu. Tíu leikmönnum Celtic tókst ekki að halda út þar sem hinn 19 ára gamli Kai Andrews skoraði sigurmark leiksins á 87. mínútu.
Lokatölur 1-2 fyrir Hibernian en þetta tap er mikill skellur fyrir Skotlandsmeistara Celtic sem rúlluðu deildinni upp í fyrra.
Celtic situr í þriðja sæti og er sex stigum á eftir Tómasi Bent og félögum, en með leik til góða. Sigur í gær hefði því getað gert liðinu kleift að jafna Hearts á stigum í leiknum til góða.
Tómas er búinn að skora 3 mörk í 25 leikjum með Hearts eftir að skoska félagið keypti hann frá Val í fyrra.
Athugasemdir




