Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
   mán 25. mars 2019 23:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Hannes: Oft stutt á milli gegn þessum stóru þjóðum
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Það er fúlt að tapa þessu 4-0 eftir að hafa verð 1-0 undir megnið af leiknum," sagði Hannes Þór Halldórsson, markvörður landsliðsins, eftir tap gegn Frakklandi í undankeppni EM í kvöld. „Það svíður að tapa þessu 4-0."

Lestu um leikinn: Frakkland 4 -  0 Ísland

„Við fáum á okkur annað markið og þá riðlast leikur okkar. Þeir ganga á lagið. Þeir hitta vel úr sínum slúttum. Þeir gera vel. Það er oft stutt á milli í þessu þegar þú ert að spila á móti þessum stóru þjóðum."

Ísland spilaði með fimm manna vörn í dag. Það er ekki eitthvað sem hefur verið mikið gert áður.

„Nú þarftu að spila fróðari spekinga mig. Mér leið vel með að fara inn í þennan leik með þetta leikkerfi. Þetta er eins erfiður útivöllur að fara á. Mér fannst það fínt upplegg að fara inn í þetta með svolítinn múr og sjá svo hvað við gætum klórað. Það var of auðvelt fyrir þá að eiga við okkur."

„Það þarf allt að ganga upp gegn þessu liði. Það gekk ekki allt upp hjá okkur."

Næstu leikir eru gegn Albaníu og Tyrklandi á Laugardalsvelli í júní.

„Við megum ekki gleyma því að þetta var leikurinn sem hefði verið mega bónus að fá eitthvað út úr. Það er allt undir í júní."

Viðtalið er í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner