Newcastle leitar að mögulegum arftaka Isak - Man City aftur á eftir Livramento - Shaw til Sádi-Arabíu?
   lau 26. júlí 2025 16:43
Brynjar Ingi Erluson
2. deild: Ólsarar unnu fjórða leikinn í röð
Anel Carnac var hetja Ólsara í dag
Anel Carnac var hetja Ólsara í dag
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingur Ó. 3 - 2 KFA
0-1 Jawed Abd El Resak Boumeddane ('26 )
1-1 Matheus Bissi Da Silva ('30 , Sjálfsmark)
2-1 Ingvar Freyr Þorsteinsson ('45 )
2-2 Heiðar Snær Ragnarsson ('50 )
3-2 Anel Crnac ('65 )

Víkingur Ólafsvík vann fjórða leik sinn í röð í öllum keppnum er það lagði KFA að velli, 3-2, í markaleik á Ólafsvíkurvelli.

Jawed Abd El Resak Boumeddane, sem hefur verið drjúgur fyrir KFA á tímabilinu, kom gestunum yfir á 26. mínútu.

Fjórum mínútum síðar varð Matheus Bissi fyrir því óláni að setja boltann í eigið net og sá Ingvar Freyr Þorsteinsson til þess að Ólsarar færu með forystu inn í hálfleikinn.

Heiðar Snær Ragnarsson, einn heitasti leikmaður KFA á tímabilinu, jafnaði metin snemma í þeim síðari áður en Anel Crnac skoraði sigurmark heimamanna tæpum hálftíma fyrir leikslok.

Anel að skora sitt fyrsta mark á tímabilinu. Síðustu ár hefur það verið þemað að hann skori eitt deildarmark á tímabili og í síðustu þrjú skipti hefur Víkingur unnið þegar hann skorar.

Ólsarar hafa nú unnið síðustu fjóra leiki í öllum keppnum og eru með 22 stig í 6. sæti en KFA í 8. sæti með 17 stig.
2. deild karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Ægir 14 9 2 3 40 - 22 +18 29
2.    Dalvík/Reynir 14 8 2 4 26 - 13 +13 26
3.    Þróttur V. 14 8 2 4 19 - 14 +5 26
4.    Haukar 14 7 3 4 26 - 21 +5 24
5.    Grótta 14 6 5 3 23 - 16 +7 23
6.    Víkingur Ó. 14 6 4 4 28 - 21 +7 22
7.    Kormákur/Hvöt 14 7 0 7 21 - 25 -4 21
8.    KFA 14 5 2 7 34 - 33 +1 17
9.    KFG 14 5 1 8 23 - 32 -9 16
10.    Kári 14 5 0 9 17 - 33 -16 15
11.    Höttur/Huginn 14 3 3 8 18 - 33 -15 12
12.    Víðir 14 2 2 10 15 - 27 -12 8
Athugasemdir