„Þetta var heilt yfir ágætt hjá okkur," sagði Helgi Sigurðsson, þjálfari ÍBV, eftir 3-0 sigur gegn Þrótti á heimavelli í Lengjudeildinni.
„Auðvitað vill maður oft meira en 3-0 sigur, maður getur ekki kvartað yfir því. Það tók tíma að brjóta Þróttarana á bak aftur, en eftir að við skoruðum markið í lok fyrri hálfleiks þá fannst mér þetta í raun aldrei í hættu," sagði Helgi.

Lestu um leikinn: ÍBV 3 - 0 Þróttur R.
ÍBV hafði gert þrjú jafntefli í röð fyrir sigurinn í dag, en liðið er eftir leiki dagsins í öðru sæti með 18 stig.
„Við vitum alveg að við erum ekki að fara að vinna alla leiki. Við erum alla vega eitt af þeim liðum í þremur efstu deildunum sem hefur ekki enn tapað leik. Við erum á góðu róli í þessari deild, þetta er sterk deild og við verðum að halda áfram. Hver einasti leikur er mjög erfiður."
Viðtalið er í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir