Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fim 09. ágúst 2018 21:13
Ívan Guðjón Baldursson
Pepsi-kvenna: Selfoss stal stigunum í Hafnarfirði
Caitlyn Alyssa Clem var frábær á milli stanganna.
Caitlyn Alyssa Clem var frábær á milli stanganna.
Mynd: Fotbolti.net - Anna Þonn
FH 0 - 1 Selfoss
0-1 Allyson Paige Haran ('20)

Allyson Paige Haran gerði eina mark leiksins er Selfoss lagði FH að velli í fallbaráttuslag í Pepsi-deild kvenna.

Leikurinn byrjaði fjörlega og áttu Hafnfirðingar að fá vítaspyrnu fyrir hendi snemma leiks en ekkert var dæmt. Tíu mínútum síðar komust Selfyssingar yfir.

Allyson fékk þá boltann eftir aukaspyrnu en skot hennar varið. Hún hirti frákastið sjálf og skoraði.

Heimamenn skiptu um gír undir lok fyrri hálfleiks og gerðu það aftur í upphafi fyrri hálfleiks en þær komu knettinum ekki framhjá Caitlyn Alyssa Clem sem átti frábæran mark á milli stanga gestanna.

Selfoss stal því mikilvægum sigri í Hafnarfirði og fer í fimmtán stig. FH situr eftir á botninum með sex stig og er sex stigum frá KR í öruggu sæti.
Athugasemdir
banner
banner
banner