Liverpool vill Conceicao - City að vinna kapphlaupið um Anderson - Ýmsir orðaðir við Man Utd
   mið 01. apríl 2026 16:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ancelotti staðfesti fyrsta nafnið í HM hópnum
Var hjá Real á árunum 2015-17.
Var hjá Real á árunum 2015-17.
Mynd: EPA
Carlo Ancelotti er búinn að bóka eitt sæti í 26 manna HM hóp Brasilíumanna fyrir reynsluboltann Danilo.

„Danilo er mjög mikilvægur leikmaður, ekki bara inni á vellinum heldur líka utanvallar," sagði Ancelotti fyrir leik Brasilíu og Króatíu sem fram fór í nótt.

„Danilo verður í 26 manna hópnum því ég er hrifinn af honum. Hann getur leyst allar stöðurnar í vörninni. Ég er með nokkuð skýra mynd hvernig byrjunarliðið verður og 26 manna hópurinn er nokkuð klár," sagði Ancelotti.

Danilo er 34 ára og spilar með Flamengo í heimalandinu. Hann á að baki 67 landsleiki og spilaði á sínum tíma með Real Madrid og Manchester City.

Ancelotti segir að brasilíska liðið þurfi líka að geta varist, það sé ekki nóg að einblína á sóknarleikinn.

Brasilía verður í riðli með Marokkó, Skotlandi og Haítí.
Slapp
banner