Liverpool vill Conceicao - City að vinna kapphlaupið um Anderson - Ýmsir orðaðir við Man Utd
   mið 01. apríl 2026 17:46
Brynjar Ingi Erluson
Diljá skoraði og Sædís lagði upp
Kvenaboltinn
Diljá skoraði fyrsta deildarmarkið á tímabilinu
Diljá skoraði fyrsta deildarmarkið á tímabilinu
Mynd: Brann
Diljá Ýr Zomers opnaði markareikninginn með Brann á tímabilinu í sannfærandi 4-1 sigri á Bodö/Glimt í norsku úrvalsdeildinni í dag.

Landsliðskonan var í byrjunarliði Brann annan deildarleikinn í röð, en hún hafði komið inn af bekknum í fyrstu umferðinni og lagði þá upp eitt af fimm mörkum liðsins.

Í dag kom síðan fyrsta markið en það gerði hún á 25. mínútu sem var annað mark Brann í leiknum.

Diljá fór af velli eftir tæpan klukkutímaleik en liðið er á toppnum með 7 stig eftir þrjá leiki.

Sædís Rún Heiðarsdóttir lagði upp fyrsta mark Vålerenga í 4-0 sigri á Roa.

Hún var í byrjunarliði Vålerenga en Arna Eiríksdóttir kom inn af bekknum þegar rúmar tíu mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma.

Vålerenga er í 2. sæti með 6 stig.

Marie Jóhannsdóttir var í byrjunarliði Molde sem gerði markalaust jafntefi við Lyn og þá byrjaði Daníela Dögg Guðnadóttir hjá Álasundi sem tapaði fyrir Haugesund, 3-1.

Álasund og Molde eru bæði nýliðar í deildinni.
Slapp
banner
banner