Liverpool vill Conceicao - City að vinna kapphlaupið um Anderson - Ýmsir orðaðir við Man Utd
   mið 01. apríl 2026 17:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Maguire gæti fengið lengra bann
Mynd: EPA
Harry Maguire hefur verið ákærður af enska fótboltasambandinu út af hegðun hans gegn Bournemouth í síðasta deildarleik Manchester United.

Maguire fékk að líta rauða spjaldið fyrir að brjóta á Evanilson í góðri stöðu inn á vítateig United.

Fyrir það fékk hann eins leiks bann en enska sambandið vill skoða hegðun hans í kjölfar rauða spjaldsins.

„Því er haldið fram að varnarmaðurinn hafi hagað sér á óviðeigandi hátt og/eða notað móðgandi orð og/eða hegðun gagnvart fjórða dómaranum eftir að hann var rekinn af velli. Harry Maguire hefur frest til fimmtudagsins 2. apríl til að svara," segir í tilkynningu enska sambandsins.

Maguire verður í banni gegn Leeds eftir tæpar tvær vikur en hann gæti fengið lengra bann.
Slapp
banner
banner