Real Madrid sýnir Mac Allister áhuga - Greenwood eftirsóttur - Mourinho til Tyrklands? - Slot vill fá Silva
banner
   fös 02. febrúar 2024 10:37
Elvar Geir Magnússon
Eggert yfirgefur æfingabúðir Elfsborg vegna meiðsla
Eggert Aron Guðmundsson er nítján ára.
Eggert Aron Guðmundsson er nítján ára.
Mynd: Elfsborg
Eggert Aron Guðmundsson mun yfirgefa æfingabúðir sænska félagsins Elfsborg í Portúgal vegna meiðsla. Liðið er að búa sig undir komandi tímabil í sænska boltanum.

Í stuttri tilkynningu félagsins segir að Eggert hafi verið að glíma við meiðsli í fæti síðan hann var með íslenska landsliðinu í janúarverkefninu.

Hann sé að fara í skoðun í Gautaborg og frekari upplýsingar gefnar að henni lokinni.

Eggert, sem er nítján ára gamall. átti frábært tímabil í Bestu deildinni á síðasta tímabili og var valinn efnilegasti leikmaður Íslandsmótsins. Elfsborg keypti hann af Stjörnunni og skrifaði hann undir samning til 2028.


Athugasemdir
banner
banner