Mexíkóska félagið Pachuca ætlar að reyna að semja við Neymar áður en HM félagsliða hefst.
Samkvæmt Marca þá lítur félagið á þetta sem sögulegt tækifæri, bæði íþróttalega og viðskiptalega.
Samkvæmt Marca þá lítur félagið á þetta sem sögulegt tækifæri, bæði íþróttalega og viðskiptalega.
Neymar myndi þá gera stuttan samning við Pachuca bara til að spila með á mótinu.
Samningur Neymar við Santos rennur út 30. júní en talið er að hann sé að biðja um samning frá Pachuca sem myndi gera hann að launahæsta leikmanni í sögu mexíkóska fótboltans.
HM félagsliða hefst 14. júní og hefur mótið aldrei verið stærra en núna.
Athugasemdir