Norska félagið Brann gerði tilboð í Höskuld Gunnlaugsson, fyrirliða Breiðabliks, í vetur. Höskuldur átti sitt besta tímabil á ferlinum í fyrra er Blikar urðu Íslandsmeistarar.
Breiðablik samþykkti ekki tilboðið og Höskuldur fór því hvergi. Hann sagði það heiður að eitt stærsta félag Skandinavíu hefði sýnt sér áhuga en engin gremja hefði samt komið upp í kjölfarið.
Breiðablik samþykkti ekki tilboðið og Höskuldur fór því hvergi. Hann sagði það heiður að eitt stærsta félag Skandinavíu hefði sýnt sér áhuga en engin gremja hefði samt komið upp í kjölfarið.
Freyr Alexandersson er þjálfari Brann en hann var spurður út í Höskuld í hlaðvarpi hér á Fótbolta.net á dögunum.
„Hann er góður leikmaður, fyrst og fremst. Það var svo sem ekki komið langt en við athuguðum hvort það væri hægt að kaupa hann frá Breiðabliki og það var ekki hægt. Það náði ekki lengra en það. Hann var einn af þremur sem við vorum að skoða á sama tíma," sagði Freyr.
„Hann er góður leikmaður og frábær manneskja."
Geturðu séð það fyrir þér að reyna aftur að fá hann?
„Nei. Það er bara búið. Við keyptum annan leikmann sem að Höskuldur var í samkeppni við um að koma. Það pláss er farið," sagði Freyr.
„Ég fylgdist nógu mikið með honum til að vita að hann gæti hjálpað okkur og barist um stöðuna hér og á sama tíma veit ég að hann er í hæsta gæðaflokki sem manneskja. Það er ekki minnsta það sem ég kíki á."
Freyr hafði hugsað sér að fá Höskuld sem hægri bakvörð en hann hefði líka getað leyst það að spila inn á miðsvæðinu hjá Brann. Höskuldur endaði á að vera áfram í Breiðabliki en hann er þeirra mikilvægasti leikmaður.
Athugasemdir