Óvíst hvort Casemiro og Maguire verði áfram hjá Man Utd - Glasner ætlar ekki að framlengja - Joelinton gæti farið frá Newcastle
Kristall Máni: Hef alltaf vitað að fótboltahæfileikarnir hverfa ekki
Jóladagatalið: Stólar fullir af hálfvitum
Jóladagatalið: „Vonandi hefur Gummi Ben eitthvað lært af þessu“
Kominn í grænt eftir eitt tímabil í Svíþjóð - „Eftir það tók ég ákvörðun um að fara annað“
Ætlaði ekki að koma heim - „Þegar ég talaði við Óskar lá þetta fyrir“
Jóladagatalið: Kristján Óli eftir að hafa skorað ljótasta markið á ferlinum
Jóladagatalið: Auðunn Blöndal og Gaui Þórðar í geitungavandræðum
Ísak bendir á augljóst vandamál: Erum ekki nógu góðir þar
Jóladagatalið: Allir á þjóðhátið, það er skylda hjá mér!
Æfingaleikur: Aron Kristófer skoraði frá miðju gegn Leikni
Jóladagatalið: Þið vitið aldrei neitt um okkur
„Láki tengdi okkur við góðan mann erlendis"
Ævintýraþjálfari Völsungs: Þegar þú ferðast um heiminn verður þú að taka ákvarðanir hratt
Ólafur Ingi: Heilt yfir stoltur en fannst við vera pínu klaufar
Margt í gangi í hausnum á Damir fyrir leikinn - „Spurðu þá sem stjórna klúbbnum“
Höskuldur: Þau eru ekkert verðugri en við að vera þarna
Anton Ari: Sannaði fyrir mér að við áttum alveg erindi hingað
Jóladagatalið: Frasabók Margrétar Láru
Arnór Gauti: Þetta er bara sturlun
Sá fyrir sér að ljúka ferlinum með Blikum: Því miður vildi klúbburinn leita eitthvað annað
   mán 02. september 2019 21:39
Helga Katrín Jónsdóttir
Ingibjörg: Þetta var mikill þolinmæðisleikur
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ísland tók á móti Slóvakíu á Laugardalsvelli í kvöld í undankeppni EM og sigruðu stelpurnar okkar 1:0 með marki frá Elínu Mettu eftir um klukkutíma leik. Ingibjörg Sigurðardóttir var kát eftir leik:

Lestu um leikinn: Ísland 1 -  0 Slóvakía

"Mikill þolinmæðisleikur og við þurftum virkilega að sýna okkar bestu hliðar í uppspilinu og vera þolinmóðar en það skilaði sér að lokum svo ég er mjög ánægð."

"Þetta spilaðist alveg eins og við bjuggumst við. Við vissum að þær myndu vera þéttar til baka og vera eins og þær eru, grófar og reyna að tefja, svo það kom okkur ekkert þannig á óvart."

Ingibjörg spilaði í miðverðinum í dag í fjarveru Sifjar.

"Mér leið mjög vel þar, það er náttúrulega mín staða svo alltaf þegar ég fæ tækifæri til að spila hana þá nýt ég þess vel."

Þá er fyrstu tveimur leikjunum hjá stelpunum okkar lokið í undankeppni EM og 6 stig í hús.

"Já geggjuð byrjun og gott að koma aftur á Laugardalsvöll og sýna okkar bestu hliðar. Við gætum ekki verið sáttari."

Hvernig finnst Ingibjörgu að spila hjá nýjum þjálfara?

"Já það eru ákveðnar áherslubreytingar en við höldum alveg í okkar gildi og erum alltaf mikið baráttulið og leggjum mikið upp úr því. Við erum að taka mikilvæg skref að bæta uppspilið svo það er eitthvað sem við erum að bæta undir hans stjórn."

Var Ingibjörg ánægð með mætinguna á völlinn í kvöld?

"Já, ég held það bara. Það heyrðist allavega vel í þeim. Það er alltaf virkilega gaman að fá mikið af fólki á völlinn."
Athugasemdir
banner
banner