Víkingur R. 2 - 0 ÍR
1-0 Ármann Ingi Finnbogason ('68)
2-0 Karl Friðleifur Gunnarsson ('74)
1-0 Ármann Ingi Finnbogason ('68)
2-0 Karl Friðleifur Gunnarsson ('74)
Íslandsmeistarar Víkings unnu í kvöld sigur gegn ÍR í Lengjubikar karla. Leikið var á Víkingsvelli.
Staðan var markalaus í hálfleik en það tók Víkinga dágóðan tíma að brjóta ÍR-inga á bak aftur. Það tókst loksins þegar 68 mínútur voru búnar en þá skoraði Ármann Ingi Finnbogason.
Karl Friðleifur Gunnarsson bætti svo við marki og gerði út um leikinn með skoti utan af velli.
Lokatölur 2-0 og enda Víkingar í öðru sæti riðilsins með jafnmörg stig og KR. Vesturbæjarstórveldið er með talsvert betri markatölu og vinnur riðilinn. ÍR endar með sjö stig í fjórða sæti.
Athugasemdir



