Lionel Scaloni, þjálfari argentínska landsliðsins, segist fullviss um að nafni hans, Lionel Messi, geti rofið þúsund marka múrinn áður en hann leggur skóna á hilluna.
Messi komst yfir 900 marka múrinn í mars og er nú kominn með 902 mörk í öllum keppnum með félagsliði og landsliði.
Argentínumaðurinn fagnar 39 ára afmæli sínu eftir tvo mánuði, en Scaloni segir Messi vel geta komist í 1000 mörk áður en hann ákveður að kalla þetta gott.
„Ég er viss um að ef Leo Messi vill rjúfa þúsund marka múrinn þá muni hann gera það,“ sagði Scaloni.
Mikið hefur verið rætt og ritað um þennan sérstaka áfanga, en helsti keppinautur Messi, Cristiano Ronaldo, færist nær þeim áfanga með hverjum leiknum.
Ronaldo er 35 mörkum frá því á meðan Messi vantar 98 mörk. Að vísu tókst Messi að skora 900 mörk í aðeins 1142 leikjum á meðan Ronaldo gerði það í 1236 leikjum.


