Liverpool vill Conceicao - City að vinna kapphlaupið um Anderson - Ýmsir orðaðir við Man Utd
   fim 02. apríl 2026 09:00
Brynjar Ingi Erluson
Real Madrid íhugar að selja Camavinga í sumar
Eduardo Camavinga
Eduardo Camavinga
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Spænska félagið Real Madrid er alvarlega að íhuga að selja franska miðjumanninn Eduardo Camavinga í sumarglugganum, en þetta segir spænski miðillinn AS.

Staða Camavinga er sagði mjög flókin og að Madrídingar hafi ekki enn tekið ákvörðun um framtíð hans.

AS útilokar hins vegar ekki möguleikann á sölu og spilar inn í staða hans í hópnum og meiðsli.

Hann hefur tvisvar meiðst á ökkla á þessu tímabili sem hafa haldið honum frá keppni í nokkrar vikur og þá var hann frá í ellefu daga eftir að hafa fengið tannpínu.

Fjölhæfni hans hefur ekki heldur hjálpað honum að ná markmiðinu sem er að festa sig í sessi á miðsvæðinu, en hann hefur spilað á vængnum, bakverði og á miðjunni.

Alvaro Arbeloa, þjálfari Real Madrid, horfir ekki á Camavinga sem lykilmann og ekki leikmann sem hægt er að treysta 100 prósent fyrir stóru leikjunum.

Samkvæmt AS eru mörg félög í ensku úrvalsdeildinni að horfa til hans og þá er Paris Saint-Germain einnig að skoða möguleikann á að fá hann aftur heim til Frakklands.

Enn eins og áður kom fram hefur engin ákvörðun verið tekin, en í augnablikinu er útlit fyrir að Real Madrid sé opið fyrir því að selja þennan 23 ára gamla Frakka í sumar.
Slapp
banner