Fyrsta skotmark De Zerbi - Man Utd fylgist með miðverði Benfica - Kofane til Arsenal - Hvað verður um Kounde og Dumfries?
   fim 02. apríl 2026 10:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Þjálfari Chelsea mætti með síma í viðtal og sýndi myndband
Kvenaboltinn
Sonia Bompastor.
Sonia Bompastor.
Mynd: EPA
Alyssa Thompson með boltann í leiknum í gær.
Alyssa Thompson með boltann í leiknum í gær.
Mynd: EPA
Það kom upp atvik í leik Arsenal og Chelsea í Meistaradeild kvenna í gær þar sem leikmaður Arsenal refi í hár leikmanns Chelsea og slapp án þess að dæmt var brot á það.

Katie McCabe reif í hár Alyssu Thompson og Sonia Bompastor, þjálfari Chelsea, fékk tvö gul spjöld með stuttu millibili fyrir að mótmæla - og rauða spjaldið fylgdi seinna gula spjaldinu.

Í viðtali eftir leikinn mætti Bompastor með símann sinn með sér og sýndi spyrlinum og áhorfendum heima í stofu myndband af atvikinu - allt annað en sátt.

McCabe hefði átt að fá rautt spjald fyrir brotið og það hefði getað haft áhrif á niðurstöðu einvígisins. Atvikið átti sér stað fyrir framan varamannabekkina og því sá Bompastor það mjög vel. Hún var brjáluð að VAR hafi ekki gripið inn í og skildi ekki til hvers það væri VAR ef það væri ekki til að leiðrétta mistök dómarans.

Chelsea vann leikinn 1-0 en það dugði ekki til því Arsenal vann tveggja marka sigur í fyrri leiknum og fer í undanúrslit. Bayern Munchen, með Glódísi Perlu Viggósdóttur innanborðs, sló út Manchester United í gærkvöldi. Í kvöld verða svo seinni tvö einvígin kláruð.

McCabe baðst afsökunar á brotinu í færslu á Instagram eftir leikinn. Sagðist hafa verið að reyna grípa í treyju Thompson.


Slapp
banner
banner