Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   þri 08. janúar 2019 20:02
Elvar Geir Magnússon
Doha
Fjórir landsmeistarar í æfingabúðum í Katar
Icelandair
Kyndillinn á Aspire svæðinu í Katar.
Kyndillinn á Aspire svæðinu í Katar.
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
Það er alvöru fótboltastemning í janúar í Katar enda vantar ekki liðin sem hingað leggja leið sína í æfingabúðir. Hingað sækja þau í toppaðstæður og hita en sífellt verður vinsælla að fljúga til Katar til æfinga.

Íslenska landsliðið tók í dag sinn fyrsta æfingadag í Katar og æfði við Aspire akademíuna. Á sama tíma voru Þýskalandsmeistarar Bayern München og Hollandsmeistarar PSV Eindhoven við æfingar á öðrum völlum á svæðinu.

Þetta er áttunda árið í röð sem Bayern nýtir vetrarfríið í þýska boltanum og fer til Katar í janúar.

Svíþjóð, Finnland og Eistland eru einnig við æfingar hérna og þá mæta Frakklandsmeistarar PSG um komandi helgi. Einnig eru fjögur rússnesk félagslið væntanleg, þar á meðal Rússlandsmeistarar Lokomotiv frá Moskvu.


Athugasemdir
banner
banner