Rashford, Tudor, Glasner, Iraola, Höjlund, Goretzka, Bastoni og fleiri góðir í slúðri dagsins
   lau 14. mars 2026 10:05
Elvar Geir Magnússon
Hlustaðu í BEINNI - 12:00 Útvarpsþátturinn Fótbolti.net
Mynd: Fótbolti.net
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er á dagskrá á X977 í dag milli 12 og 14 eins og venjan er á laugardögum. Elvar Geir og Tómas Þór eru umsjónarmenn þáttarins.

Smelltu hér til að hlusta á X977 í beinni

Farið er yfir fréttir vikunnar úr íslenska boltanum og Valur Gunnarsson er á línunni beint úr Garðabænum þar sem Stjarnan og KR mætast í undanúrslitum Lengjubikarsins.

Það voru stór tíðindi frá Akureyri í gær þar sem KA kynnti tvo nýja leikmenn. Rætt er við Hallgrím Jónasson, þjálfara liðsins.

Þá verður spáð í spilin fyrir seinni leikina í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar og Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson fer yfir hvaða leikmenn eru þeir heitustu í ensku úrvalsdeildinni um þessar mundir.


Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er á X-inu alla laugardaga kl. 12-14. Umsjónarmenn þáttarins eru Tómas Þór Þórðarson og Elvar Geir Magnússon. Hægt er að finna þá á X samfélagsmiðlinum undir @tomthordarson og @elvargeir.

Smelltu hér til að hlusta á upptökur úr eldri þáttum.

Þú getur hlustað á X-ið á netinu með því að smella hérna

Athugasemdir
banner