Rashford, Tudor, Glasner, Iraola, Höjlund, Goretzka, Bastoni og fleiri góðir í slúðri dagsins
   lau 14. mars 2026 11:48
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Carragher: Af hverju er hann ekki efstur á óskalista Man Utd?
Jamie Carragher.
Jamie Carragher.
Mynd: EPA
Unai Emery.
Unai Emery.
Mynd: EPA
Jamie Carragher, sparkspekingur á Sky Sports, telur að Manchester United ætti alvarlega að íhuga það að ráða Unai Emery til starfa í sumar.

Emery hefur unnið stórkostlegt starf með Aston Villa og er liðið sem stendur í fjórða sæti ensku úrvalsdeildarinnar.

Hann hefur hins vegar ekki verið á meðal þeirra sem hafa verið mest orðaðir við starfið hjá United. Michael Carrick stýrir United til bráðabirgða og verður svo ráðinn stjóri til frambúðar í sumar.

Carragher telur að Emery væri góður kostur fyrir Man Utd og skrifaði um það pistil í Telegraph.

„Emery á að mæta á Old Trafford um helgina sem líklegasti kandídatinn til að taka við United í sumar," skrifaði Carragher en Villa sækir Man Utd heim í ensku úrvalsdeildinni um helgina.

Carragher telur hins vegar að horfa sé á Emery sem stjóra sem nái bara árangri með lið sem eru aðeins fyrir neðan bestu og stærstu liðin.

„Starf Emery hjá Valencia, Villarreal, Sevilla og Villa hefur skapað óæskilegt orðspor: Að hann hafi fundið stig sitt rétt fyrir neðan rótgrónu stórveldin. Ef þú ert sofandi risi sem er að berjast við miðja deildina og stefnir að því að enda í fjórða sæti og vinna Evrópudeildina, þá er hann maðurinn sem þú þarft að hringja í. Ef þú, eins og United, dreymir stórt um að vinna ensku úrvalsdeildina og Meistaradeildina á næstu fimm árum, þá er árangur Emery hjá Arsenal og Paris Saint-Germain rautt flagg," skrifar Carragher.

Carragher telur einnig að það heilli líka ekki United að Emery sé stjóri sem vilji hafa mikla stjórn á bak við tjöldin, en hann er samt sem áður mikill aðdáandi og telur að Spánverjinn eigi að vera ofarlega á lista á Old Trafford. „Emery vinnur titla, spilar góðan fótbolta og er með mikla reynslu í ensku úrvalsdeildinni. Af hverju er hann ekki efstur á óskalista Man Utd?"


Athugasemdir
banner
banner