Rashford, Tudor, Glasner, Iraola, Höjlund, Goretzka, Bastoni og fleiri góðir í slúðri dagsins
   lau 14. mars 2026 11:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Hver er næsti Íslendingurinn í ensku úrvalsdeildina?
Elías Rafn Ólafsson.
Elías Rafn Ólafsson.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Það er aðeins einn Íslendingur í ensku úrvalsdeildinni um þessar mundir og þannig hefur það verið síðustu ár; Hákon Rafn Valdimarsson hjá Brentford.

En hver er næsti Íslendingurinn í ensku úrvalsdeildina?

Þessi umræða er áhugaverð og hefur verið í gangi um nokkuð langt skeið núna.

EpicBet hefur núna ákveðið að setja stuðla á það hver er líklegasti íslenski leikmaðurinn til að vera keyptur næst af félagi í ensku úrvalsdeildinni.

Samkvæmt þeim er markvörðurinn Elías Rafn Ólafsson líklegastur. Elías spilar í dag við góðan orðstír hjá Midtjylland í Danmörku.

Næstir koma Albert Guðmundsson og Hákon Arnar Haraldsson.


Athugasemdir
banner