Shaina Ashouri, leikmaður Víkings, á von á barni síðar á þessu ári.
Hún greindi frá þessu á samfélagsmiðlum.
Það var nú þegar ljóst að Shaina myndi missa af tímabilinu sem framundan er þar sem hún er með slitið krossband.
Hún greindi frá þessu á samfélagsmiðlum.
Það var nú þegar ljóst að Shaina myndi missa af tímabilinu sem framundan er þar sem hún er með slitið krossband.
Shaina er fædd og uppalin í Bandaríkjunum en flutti fyrst til Íslands sumarið 2021 til að spila með Þór/KA í efstu deild og skipti svo yfir til FH. Hún skein skært í Hafnarfirði og var meðal allra bestu leikmanna Lengjudeildarinnar. Hún skipti svo til Víkings og fór beint í lykilhlutverk þar.
Shaina yfirgaf Víking eftir sumarið 2024 og fór til Kanada, en hún sneri aftur um mitt sumar í fyrra og spilaði mjög vel áður en hún meiddist.
Shaina er mikill markaskorari og hefur gert 14 mörk í 30 leikjum með Víkingi í Bestu deildinni.
Athugasemdir



