Gibbs-White, Anderson, Onana og Nmecha á blaði Man Utd - Diomande orðaður við ensku úrvalsdeildina - Cambiaso eftirsóttur
   mið 15. nóvember 2023 14:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Tveir Grindvíkingar æfa með unglingaliðum Lyngby
Sölvi til vinstri og Christian til hægri.
Sölvi til vinstri og Christian til hægri.
Mynd: Grindavík
Grindvíkingar sögðu frá jákvæðum tíðindum á samfélagsmiðlum sínum í gær. Tveir efnilegir Grindvíkingar hafa æft með danska félaginu Lyngby síðustu daga.

„Það er gaman að geta sagt frá einhverju jákvæðu þessa dagana en Christian Bjarmi Alexandersson 16 ára og Sölvi Snær Ásgeirsson 15 ára eru úti á reynslu hjá Lyngby í Danmörku."

„Strákarnir héldu út á laugardaginn og hafa verið að æfa með U17 og U19 ára liðum Lyngby síðustu daga.
Hefur gengið vel hingað til,"
segir í tilkynningu Grindavíkur.

Lyngby er mikið Íslendingafélag. Þrír Íslendingar eru í aðalliðshópi félagsins; Sævar Atli Magnússon, Kolbeinn Birgir Finnsson og Gylfi Þór Sigurðsson.

Þorri Stefán Þorbjörnsson er í unglingaliðinu og Freyr Alexandersson er þjálfari aðalliðsins.


Athugasemdir
banner
banner
banner