Liverpool rennur löngunaraugum til Camavinga - Barca og Juve vilja Bernardo Silva - Juventus vill Ugarte
Þrjú slit og fimm aðgerðir á milli marka - „Maður er svolítið eins og krakki aftur"
Bestur í Mjólkurbikarnum: Ferðalagið viðbjóður en er enginn sjómaður
Fer yfir leikinn sögulega - „Veit ekki hvað Jói Kalli hefði gert væri hann þarna“
Álitið - Hvað mun koma mest á óvart?
Ægir Jarl ræðir heimkomuna - „Kitlar rosalega að ná að spila“
Gunnar Már: Ætlum okkur stóra hluti í sumar
Arnór Ingvi: Hefðum viljað spila á Meistaravöllum og fá smjörþefinn af því sem koma skal
Óskar Hrafn: Leggst yfir okkur hræðsla sem við höfum ekki fundið fyrir í vetur
Frammistaðan ekki áhyggjuefni - „Skal hundur heita ef það verður skorað flottara mark í sumar“
Rúnar Páll: Óþarfa spenna hérna í lokin
Gunnar Heiðar: Vorum ekki með í fyrri hálfleik
Álitið - Hvaða lið verður spútnikliðið?
Jökull: Menn klára páskaeggin í kvöld og svo erum við klárir
Álitið - Hvaða lið veldur mestu vonbrigðum?
Hallgrímur Mar eftir að hafa byrjað á bekknum: „Hvað heldur þú?“
KA menn klöppuðu hreindýrum fyrir 0-5 sigurinn
Kristófer Ingi: Ekkert heyrt um samning og fókusa á að spila
Todor Hristov eftir 0-5 tap: „Aðeins dýrara lið en okkar“
Linta svekktur: Ánægður með spilamennskuna
Gylfi fékk högg og bólgnaði - „Það þarf bara að skoða það“
   þri 16. ágúst 2016 21:20
Lárus Ingi Magnússon
Þorvaldur: Almarr getur bullað eins og hann vill
Skaut á son bróður síns eftir leik
Þorvaldur Örlygsson þjálfari Keflavíkur.
Þorvaldur Örlygsson þjálfari Keflavíkur.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Við vildum fá þrjú stig og gerðum allt til þess að gera það. Lögðum okkur fram, sköpuðum færi og fengum færi en kannski ekki nógu mörg opin færi," sagði Þorvaldur Örlygsson þjálfari Keflavíkur eftir markalaust jafntefli við KA í kvöld.

Lestu um leikinn: Keflavík 0 -  0 KA

„En við gáfum ekki mikið af færum á okkur og vorum með stjórn á leiknum án þess að ná að klára. Það er svekkjandi því við vorum með leikinn í okkar hendi. Það er svekkjandi að ná ekki í þrjú stig," hélt hann áfram.

Keflavík er sjö stigum frá KA sem er í 2. sæti eftir leiki kvöldsins. Liðið tapaði fyrir toppliði Grindavíkur í síðustu umferð en er tækifæri Keflavíkur á að komast strax upp aftur að renna þeim úr greipum?

„Ég get ekki svarað því, hvort sem við hefðum unnið eða ekki þá höldum við áfram. Við náðum ekki þessum tveimur leikjum og spiluðum ágætis leiki báða tvo og vorum með stjórn á þeim en það vantaði að skora til að breyta leikjunum okkar og það telur."

Þorvaldur sagði að Sigurbergur Elísson sem spilaði ekkert í dag hafi verið meiddur en nánar er rætt við hann í sjónvarpinu að ofan.

Almarr Ormarsson leikmaður KA og bróðursonur Þorvalds kvartaði undan flautukonsert dómarans í viðtali eftir leik og um það sagði Þorvaldur:

„KA menn eru búnir að væla í allt sumar og sérstaklega heima þar sem allt hefur gengið upp hvað varðar dómgæslu. Þeir eru þá ekkert vanir því að fá réttláta dóma, það verður að segjast. Hann getur bullað eins og hann vill."
Almarr: Eins og dómarinn nenni þessu ekki
Slapp
banner
banner