Andri Adolphsson skoraði eina mark Vals í 2-1 tapi gegn uppeldisfélagi hans, ÍA.
„Þetta var ógeðslega svekkjandi. Við spilum mjög góðan leik og náum að komast bakvið þá trekk í trekk en náum ekki að klára færin."
„Við ætluðum bara að halda haus. Við höfum komið til baka áður og við ætluðum að vera rólegir áfram og halda áfram að spila okkar leik, sem við gerðum og náðum að setja eitt mark."
„Það var bara virkilega skemmtilegt að spila á móti ÍA. Það er mjög skrýtið að vera hinumegin en leiðinlegt að vinna ekki," sagði Andri.
Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.
























