Miðjumaður Everton orðaður við Man Utd - Ramos til Liverpool?
Kristall Máni: Hef alltaf vitað að fótboltahæfileikarnir hverfa ekki
Jóladagatalið: Stólar fullir af hálfvitum
Jóladagatalið: „Vonandi hefur Gummi Ben eitthvað lært af þessu“
Kominn í grænt eftir eitt tímabil í Svíþjóð - „Eftir það tók ég ákvörðun um að fara annað“
Ætlaði ekki að koma heim - „Þegar ég talaði við Óskar lá þetta fyrir“
Jóladagatalið: Kristján Óli eftir að hafa skorað ljótasta markið á ferlinum
Jóladagatalið: Auðunn Blöndal og Gaui Þórðar í geitungavandræðum
Ísak bendir á augljóst vandamál: Erum ekki nógu góðir þar
Jóladagatalið: Allir á þjóðhátið, það er skylda hjá mér!
Æfingaleikur: Aron Kristófer skoraði frá miðju gegn Leikni
Jóladagatalið: Þið vitið aldrei neitt um okkur
„Láki tengdi okkur við góðan mann erlendis"
Ævintýraþjálfari Völsungs: Þegar þú ferðast um heiminn verður þú að taka ákvarðanir hratt
Ólafur Ingi: Heilt yfir stoltur en fannst við vera pínu klaufar
Margt í gangi í hausnum á Damir fyrir leikinn - „Spurðu þá sem stjórna klúbbnum“
Höskuldur: Þau eru ekkert verðugri en við að vera þarna
Anton Ari: Sannaði fyrir mér að við áttum alveg erindi hingað
Jóladagatalið: Frasabók Margrétar Láru
Arnór Gauti: Þetta er bara sturlun
Sá fyrir sér að ljúka ferlinum með Blikum: Því miður vildi klúbburinn leita eitthvað annað
   lau 17. nóvember 2018 16:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ari Freyr: Á eftir að spila markvörð og framherja
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ari Freyr Skúlason spilaði sem hægri bakvörður þegar Ísland tapaði 2-0 gegn Belgíu í Þjóðadeildinni síðastliðinn fimmtudag.

Það er ekki staða sem Ari er vanur, hann er vanari að spila í vinstri bakverðinum.

„Sérstakt en það var allt í lagi," sagði Ari um hægri bakvarðarstöðuna. „Ég fékk að fara inn á völlinn og ekki halda breiddinni, en það er leiðinlegt að tapa."

„Ég er næstum því búinn að spila allar stöður nema framherja og markvörð, ég á það eftir."

Það er margt jákvætt hægt að taka úr leiknum gegn Belgíu.

„Já, eftir allt sem er búið að gerast hjá okkur. Við héldum einu besta liði heims í 0-0 í hálfleik, en þeir eru heimsklassa lið og því miður töpuðum við 2-0. Við eigum að horfa á ljósu punktana í þessu."

Það eru mikil meiðsli að hrjá íslenska liðið.

„Þetta er erfitt fyrir litla landið sem við erum en mér fannst strákarnir sem fengu sénsinn stíga upp. Það var gaman að sjá ungu strákana keppa við nautin í vörninni hjá Belgíu."

Hér að ofan má sjá viðtalið við Ara í heild sinni en þar ræðir hann meðal annars um stöðuna hjá félagi sínu, Lokeren í Belgíu.
Athugasemdir