Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 19. febrúar 2019 09:42
Elvar Geir Magnússon
Solskjær segir að Herrera sé eitt af fyrstu nöfnum á blað
Herrera og Pogba voru bestu menn United í gær.
Herrera og Pogba voru bestu menn United í gær.
Mynd: Getty Images
Ole Gunnar Solskjær, stjóri Manchester United, hrósaði Ander Herrera sérstaklega eftir sigurinn gegn Chelsea í bikarnum í gær. Spænski miðjumaðurinn skoraði fyrra markið í 2-0 sigri.

Herrera hefur spilað lykilhlutverk í upprisunni undir stjórn Solskjær og var frábær í leiknum í gær. Solskjær segir að Herrera sé eitt af fyrstu nöfnum á blað hjá sér.

„Kraftur hans og stöðugleiki hjálpa okkur mikið. Þess vegna spilar han nnánast hvern einasta leik," sagði Solskjær.

„Hann er mjög kraftmikill og getur tekið þátt í sóknarleiknum. Eftir þennan sigur gegn Chelsea er ekki hægt að hrósa bara einum leikmanni en Ander hefur verið magnaður."

Herrera sjálfur hrósaði samherjum sínum eftir leik en vildi einnig hrósa varamönnunum.

„Varamennirnir komu virkilega vel inn í leikinn. Heimsklassa leikmaður eins og Alexis, eins og hann barðist. Svona á Manchester United að vera," sagði Herrera.

United mun mæta Wolves á útivelli í 8-liða úrslitum FA-bikarsins.
Athugasemdir
banner