Börsungar vilja Rashford aftur á láni - Ndidi gæti farið til Man Utd - Hár verðmiði á Tonali
banner
   fim 19. mars 2026 16:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
„Þá þurfum við náttúrulega að endurskoða þá afstöðu"
Rúnar Alex Rúnarsson
Rúnar Alex Rúnarsson
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Anton Ari Einarsson.
Anton Ari Einarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Rúnar Alex Rúnarsson hefur varið mark danska stórliðsins FCK í síðustu tveimur leikjum. Hann fékk kallið í bikarleik gegn Viborg og stóð sig vel. Í kjölfarið stóð hann vaktina gegn OB í dönsku deildinni og stóð sig aftur nokkuð vel. Það verður fróðlegt að sjá hvort hann verði í markinu gegn Fredericia í mikilvægum deildarleik á sunnudag.

Fyrir leikina tvo hafði Rúnar Alex ekki spilað keppnisleik með FCK í eitt og hálft ár. FCK er í brasi í dönsku deildinni og er markmiðið núna að enda í efsta sæti neðri hlutans og vinna danska bikarinn.

Rúnar Alex hefur ekki verið í íslenska landsliðinu síðustu misseri - var síðast í hópnum í nóvember 2023 - en eftir leikina tvo með FCK gerði hann tilkall á sæti í hópnum. Landsliðsþjálfarinn Arnar Gunnlaugsson valdi hins vegar áfram þá Elías Rafn Ólafsson, Hákon Rafn Valdimarsson og Anton Ara Einarsson í hópinn.

Arnar var spurður út í Rúnar Alex á fréttamannafundi í gær. Kom hann til greina og gaf hann kost á sér í þetta verkefni?

„Við höfum ekkert rætt við hann, en það er mjög ánægjulegt að hann sé farinn að spila aftur. Fyrir korteri síðan var hann þriðji markvörður hjá FCK og svo hafa örlögin hagað því þannig að hann hefur fengið gott tækifæri sem hann hefur nýtt. Þetta var einn af okkar betri markvörðum fyrir nokkrum árum síðan."

„Anton er búinn að standa sig mjög vel sem þriðji markvörður, þetta er erfið staða að vera þriðji markvörður í landsliði. Þú þarft að vera tilbúinn í ýmislegt, skotæfingar og læti; kemur inn í verkefnið vitandi að þú sért ekki að fara spila mikið nema eitthvað svakalegt gerist."

„Mér finnst Anton eiga skilið að vera áfram núna, en ef Rúnar er að fara verða aðalmarkvörður FCK, þá þurfum við náttúrulega að endurskoða þá afstöðu."


Rúnar Alex er 31 árs og á að baki 27 A-landsleiki. Samkvæmt Transfermarkt er hann samningsbundinn FCK út næsta tímabil.
Athugasemdir
banner
banner