Börsungar vilja Rashford aftur á láni - Ndidi gæti farið til Man Utd - Hár verðmiði á Tonali
banner
   fim 19. mars 2026 18:40
Ívan Guðjón Baldursson
Fjórir úrvalsdeildarmenn í liði vikunnar
Mynd: EPA
Mynd: EPA
16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar lauk í gærkvöldi og hefur UEFA valið lið vikunnar.

Þar má finna fjóra leikmenn úr ensku úrvalsdeildinni þó að sex úrvalsdeildarfélög hafi tekið þátt í 16-liða úrslitunum, en fjögur þeirra duttu úr leik.

Arsenal og Liverpool komust áfram í 8-liða úrslitin og eiga þau þrjá fulltrúa í liði vikunnar. Miðjumaðurinn öflugi Declan Rice er í liði vikunnar ásamt Dominik Szoboszlai og Ibrahima Konaté.

Xavi Simons er einnig í liði vikunnar eftir frábæra frammistöðu í 3-2 sigri Tottenham gegn Atlético Madrid, sem nægði þó ekki til að komast áfram í næstu umferð.

Sporting frá Lissabon á flesta fulltrúa í liði vikunnar, eða þrjá talsins, eftir stórsigur gegn Bodö/Glimt. Þá eiga stórveldin Real Madrid, Barcelona, FC Bayern og PSG einn fulltrúa hvert.

   13.03.2026 20:21
Courtois og Valverde í liði vikunnar



Athugasemdir
banner