Börsungar vilja Rashford aftur á láni - Ndidi gæti farið til Man Utd - Hár verðmiði á Tonali
banner
   fim 19. mars 2026 20:05
Ívan Guðjón Baldursson
Lennart Karl valinn í þýska landsliðshópinn
Mynd: EPA
Hinn 18 ára gamli Lennart Karl hefur verið valinn í landsliðshóp Þýskalands sem spilar æfingalandsleiki við Sviss og Gana í komandi landsleikjahléi.

Karl hefur hrifið marga á yfirstandandi tímabili þar sem hann hefur komið með beinum hætti að 14 mörkum í 34 leikjum með FC Bayern þrátt fyrir ungan aldur.

Karl, sem átti 18 ára afmæli í febrúar, hefur verið lykilmaður í U16 og U17 landsliðum Þýskalands og fær núna tækifærið með A-landsliðinu.

Í landsliðshópnum má finna sjö úrvalsdeildarleikmenn en flestir leikmenn liðsins spila í þýsku deildinni. Leroy Sané kantmaður Galatasaray er í hópnum.


Athugasemdir
banner
banner