Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 21. maí 2022 20:53
Brynjar Ingi Erluson
Mbappe fagnaði tímamótasamningi með því að skora þrennu
Kylian Mbappe fagnar gegn Metz í kvöld
Kylian Mbappe fagnar gegn Metz í kvöld
Mynd: EPA
Kylian Mbappe, launahæsti leikmaður heims, fagnaði tímamótasamningi við franska félagið Paris Saint-Germain í kvöld með því að skora þrennu í 5-0 sigri á Metz í lokaumferðinni í Frakklandi.

Franska félagið tilkynnti um nýja samninginn fyrir leik en hann skrifaði undir til næstu þriggja ára og verður launahæsti leikmaður heims.

Mbappe var óstöðvandi í leiknum og skoraði þrennu í öruggum 5-0 sigri.

PSG er franskur meistari þetta árið en Mbappe endaði bæði með flest mörk og stoðsendingar. Hann var með 28 mörk og 19 stoðsendingar á tímabilinu.

Þetta var kveðjuleikur argentínska vængmannsins Angel Di Maria en hann lagði upp fyrsta markið og skoraði síðan fimmta. Lionel Messi lagði upp annað mark Mbappe.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner